afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna sem er mjög áhugaverð. Fyrir það fyrsta vil ég segja að ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og styð stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Í greinargerð frumvarps um lögfestingu bókunar 35 kemur fram að 3. gr. EES-laganna hafi verið sett með það að markmiði að innleiða skuldbindingar samkvæmt bókun 35, þ.e. 3. gr. átti að taka yfir bókun 35, hún átti að vera þar innifalin.
Íslandi hefur gengið vel í EES-samstarfinu og það er samstarf sem ég styð heils hugar. Ég hef verið þeirrar skoðunar að EFTA-dómstóllinn ætti að útkljá í samningsbrotamáli ágreining um hvort 3. gr. EES-laganna væri fullnægjandi fyrir Ísland til að tryggja einsleitni reglna á EES-svæðinu. Málið mun nú með tímanum, ef frumvarpið verður samþykkt, um bókun 35, fara fyrir Hæstarétt og það er Hæstiréttur Íslands sem kveður á um það hvort íslensk lög brjóti stjórnarskrána en ekki einstaka þingmenn. Hlutverk Hæstaréttar er líka að túlka fullveldi Íslands á hverjum tíma. Ég ber mikla virðingu fyrir Hæstarétti Íslands og treysti niðurstöðu hans um hvað séu rétt lög í landinu.
Sannfæring mín liggur með stefnumálum Flokks fólksins og sannfæring mín liggur líka klárlega með stefnumálum ríkisstjórnarflokkanna og ég tel mikilvægt að við náum markmiðum okkur hvað það varðar. Ég samþykkti málið út úr ríkisstjórn á sínum tíma og samþykkti að það færi líka til þingflokka. Varðandi atkvæðagreiðsluna þá bara kemur það í ljós. Ég mun greiða atkvæði þegar þar að kemur en ég mun styðja málið.