afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.
Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því hvað hæstv. ráðherra sagði. Hann styður málið en það kemur í ljós hvernig hann greiðir atkvæði. Hvernig fer það saman? (EyjÁ: Hvað sagðirðu?) Hæstv. ráðherra segir: Ég styð málið en það kemur í ljós hvernig ég greiði atkvæði. Við undirritum (Gripið fram í.) drengskaparheit um að virða stjórnarskrána. Hæstv. ráðherra fór fyrir kosningar, og hans flokkur, og sagði: Við erum ekki að fara samþykkja þetta því þetta er stjórnarskrárbrot. Þetta er stjórnarskrárbrot. Það er ekki þannig — nema þetta séu hin nýju vinnubrögð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, að hér hleypa ráðherrar frumvörpum í gegn sem þeir telja að brjóti stjórnarskrá. Ætla þeir svo bara að láta Hæstarétt kveða á um það?
Virðulegur forseti. Er hæstv. ráðherra alvara? Hann sagði á hv. Alþingi, hann sagði þingi og þjóð að þetta væri stjórnarskrárbrot (Forseti hringir.) og dregur ekki í land með það. Hæstv. ráðherra þarf að útskýra það út af margítrekuðum yfirlýsingum sínum hvort hann hafi skipt um skoðun eða hvort hann telji þetta enn þá vera stjórnarskrárbrot. (Forseti hringir.) Því það er stórfrétt, virðulegi forseti, ef hér er komin ríkisstjórn þar sem ráðherrar samþykkja mál sem þeir telja vera stjórnarskrárbrot. Hjá öllum þeim þjóðum sem við berum okkur saman við (Forseti hringir.) myndi þetta aldrei ganga eftir.
(Forseti (ÞSv): Forseti telur ástæðu til að benda hv. þingmönnum á að ræðutíminn er tvær mínútur.)