157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.

[10:37]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Það sem ég ætlaði að segja var að ég samþykkti málið út úr ríkisstjórn og ég samþykkti það líka út úr þingflokknum til þinglegrar meðferðar. Það er líka alveg kristaltært að málið mun nánast örugglega fara fyrir Hæstarétt Íslands í dómsmáli og það verður Hæstiréttur Íslands sem kveður upp úr um það hvort lög brjóti stjórnarskrána, hvort þetta frumvarp brjóti stjórnarskrána, ekki einstakir þingmenn. (GÞÞ: Hver er skoðun ráðherrans?) Það er grundvallaratriði. Ég skal útskýra skoðun mína aftur, hugsunin var þannig að það vita allir af þessum vandamálum varðandi einsleitni á innri markaði EES. Þetta mál var leyst á sínum tíma með 3. gr. laga um EES-svæðið. (Gripið fram í.)Það var gert. Það var það breitt ákvæði að það var talið innifela bókun 35. Það hefur ekki sýnt sig, m.a. í dómi í máli Harðar Einarssonar og í fleiri málum þar sem Hæstiréttur hefur þrengt 3. gr. aftur. (Gripið fram í: Skoðun. )Skoðun mín er sú að ég styð þetta mál. Ég samþykkti það úr ríkisstjórn og samþykkti það úr þingflokknum. (Gripið fram í: … stjórnarskrá?) Ég bíð spenntur …(Forseti hringir.)

(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð.)

Ég taldi rétt að þetta mál færi fyrir EFTA-dómstólinn, ekki fyrir Hæstarétt Íslands. Núna mun það ekki fara fyrir EFTA-dómstólinn, þetta mál, verði frumvarpið samþykkt heldur mun það fara fyrir Hæstarétt Íslands og það er Hæstiréttur Íslands sem kveður á um það. (Forseti hringir.) Ekki … (Gripið fram í.) Skoðun mín skiptir ekki máli í þessu máli þegar búið er að samþykkja lög.

(Forseti (ÞSv): Enn og aftur biður forseti hæstv. ráðherra og hv. þingmenn að virða ræðutíma og gefa ræðumanni hljóð.)