áhrif bókunar 35 og breyting á lögum um jafnlaunavottun.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar sem eru kannski ekki skyldar að inntaki en hvor um sig ágæt. Varðandi bókun 35 þá hefur mér fundist það ákveðið vandamál í hinu pólitíska samtali að við tölum alltaf um eitthvert heiti, bókun 35. Við ræðum aldrei við almenning það sem er kjarni málsins, af því að hér er t.d. verið að ræða fæðingarorlof. Með bókun 35 erum við að innleiða réttindi fyrir fólkið í landinu. Þetta er réttindamál. Þetta er neytendamál. Það er t.d. það sem formaður Flokks fólksins nefndi, að hún hafi áttaði sig á því — það getur auðvitað gerst í pólitísku samtali að fólk taki rökum, það gerist í sumum flokkum að fólk taki rökum — að þetta er mikilvægt mál fyrir allan almenning í landinu og að hún styðji það af þeirri ástæðu. Varðandi þetta tiltekna dómsmál þá held ég að það sé erfitt að segja það algerlega afdráttarlaust hvað menn gera með að sækja sinn rétt en ég held að það blasi við að réttarstaða viðkomandi konu og fjölskyldu hefði verið sterkari. Ég held að hún hefði verið sterkari.
Varðandi jafnlaunavottunina þá er það þannig að hagræðingarhópur gerði ákveðnar tillögur. Ég tók þær til mín og gekk raunar lengra, ég gekk lengra en hagræðingarhópurinn lagði til. Ég sem ráðherra jafnréttismála er ekki tilbúin til að gefa neinn afslátt af markmiðum Íslands um að standa með og verja launajafnrétti. Við erum á þeim stað sem við erum í jafnréttismálum á Íslandi vegna þess að stjórnvöld hafa haft kjark og hafa haft metnað til þess að sækja fram og verja réttindi. En ég lagði líka við hlustir, heyrði og hlustaði á sjónarmið fyrirtækja, og líka stofnana, sem tala um skriffinnskuna, sem tala um kostnaðinn, sem tala um þyngslin og þess vegna er verið að hverfa frá þessu upprunalega skipulagi. Jafnlaunavottun í þeirri mynd sem lagt var upp með árið 2017 verður aflögð verði þetta frumvarp að veruleika.