157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

áhrif bókunar 35 og breyting á lögum um jafnlaunavottun.

[10:51]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir heiðarlegt svar hvað varðar bókun 35. Það er hennar mat, og þau skilaboð þá sem hún fer með út hér, að í þessu tiltekna máli hefðu kannski lyktir orðið öðruvísi, að hennar mati hefði það orðið öðruvísi ef þetta frumvarp hefði verið orðið að lögum. Það er ágætt að hafa það hér uppi á borðum.

Varðandi jafnlaunavottunina er líka ágætt að hæstv. dómsmálaráðherra hefur skipt um skoðun í því máli og viðurkennir væntanlega núna að það var auðvitað glapræði að leggja þessar kvaðir á fyrirtæki sem hafa verið. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að hér sé ekki verið að draga úr þessum kvöðum og þessu flækjustigi heldur þvert á móti bara verið að búa til nýjar kvaðir sem munu leggjast þungt á atvinnulífið en líka á hið opinbera. Eftirlitsaðilar á Íslandi eru upp fyrir haus núna í alls konar greiningum og skýrslum sem þeim er gert að taka við. Hvað á að gera við þetta allt saman? Ég spyr hæstv. ráðherra hvort það komi ekki til greina að nýta önnur tæki og tól og pólitíska umræðu (Forseti hringir.) með það að markmiði að ná þessum markmiðum sem menn vilja með jafnlaunavottun, þ.e. að taka upp önnur tól en þetta (Forseti hringir.) endalausa skrifræði.