áhrif bókunar 35 og breyting á lögum um jafnlaunavottun.
Frú forseti. Varðandi þetta dómsmál þá er ég ekkert að fullyrða neitt. Ég er að velta vöngum en undirstrika það sem mér finnst ævinlega vanta í umræðunni, ekki síst af hálfu fulltrúa Miðflokksins, að bókun 35 snýst í kjarna sínum um réttindi fyrir fólkið í landinu.
Varðandi jafnlaunavottun er það staðreynd að hún er innleidd árið 2017. Síðan eru liðin átta ár. Auðvitað er ástæða til að endurskoða regluverk að þeim tíma liðnum til að sjá hver reynslan hefur verið, hver kostnaður er og annað. Eins og ég segi þá byggir frumvarpið á tillögum starfshóps um hagræðingu. Það er verið að einfalda og létta verulega. Með hámarksstærðum eða viðmiðum um stærð fyrirtækja verður mikil breyting fyrir fyrirtæki. Samtök atvinnulífsins hafa talað um að beinn kostnaður atvinnulífsins í dag hlaupi á einhverjum milljörðum króna miðað við eigið mat fyrirtækjanna, 5–6 milljörðum. Hér er verið að aflétta og breyta og ég held að við ættum að fagna því.