157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

samgöngur til Vestmannaeyja.

[10:54]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Hefur þessi ríkisstjórn heyrt um Vestmannaeyjar af öðru en sem skattlendu? Strax nú í byrjun september er svo komið að samgöngur til Vestmannaeyja eru komnar í harðan hnút. Breiðafjarðarferjan Baldur leysir Herjólf af á meðan skipið er í slipp en sú ferja er 35 ára gamalt skip og ekki byggð fyrir þetta hafsvæði. Undanfarið hefur sjólag verið með þeim hætti að Baldur hefur siglt til Þorlákshafnar og þá nást einungis tvær ferðir á dag í stað sjö ferða í Landeyjahöfn og að sögn farþega eru þetta engar skemmtiferðir, frú forseti. Í gær var seinni ferðin felld niður og ekki gott útlit fyrir siglingar á morgun. Ekkert áætlunarflug er til Vestmannaeyja og hefur ekki verið í áraraðir. Íbúar í Vestmannaeyjum sem ætla að leita til læknis eða fara erlendis þurfa nú að fara að heiman tveim til þrem dögum fyrr en ella svo þeir geti örugglega náð að sinna erindum sínum. Mikill uppgangur hefur verið í atvinnulífi í Eyjum á undanförnum árum og vöruflutningar hafa stóraukist milli lands og Eyja. Ekki þarf að fjölyrða, frú forseti, um áhrifin sem af þessu hljótast fyrir atvinnulíf og ferðamannaiðnaðinn í Vestmannaeyjum. Þetta samgöngurof svo snemma hausts smitar inn í allan veturinn, sérstaklega hvað varðar heimsóknir ferðamanna.

Af þessu tilefni vil ég spyrja hæstv. innviðaráðherra: Hvað líður fyrirætlunum um lagfæringar á Landeyjahöfn? Mögulegar lagfæringar hafa verið til skoðunar í fjöldamörg ár og marga er farið að lengja eftir lausnum sem gætu orðið til þess að höfnin þjóni upphaflegu hlutverki sínu eins og lagt var upp með fyrir 15 árum síðan. Hvað líður lagfæringum á Landeyjahöfn?