samgöngur til Vestmannaeyja.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Að samgöngur til Vestmannaeyja séu komnar í harðan hnút tel ég nú ekki alveg rétt. En það er kominn nýr Baldur. Hann er reyndar ekki kominn með þann staðal að geta verið í úthafssiglingum að vetri til á þessu hafsvæði. Það er verið að vinna í því og Herjólfur 3 hefur verið bundinn við höfn vegna þessa, kostar 150 milljónir á ári.
Varðandi lagfæringu á Landeyjahöfn þá get ég sagt þetta: Hjá Vegagerðinni hafa verið skoðaðir möguleikar á að byggja varnargarð, ef ég man rétt, fyrir austan núverandi höfn eða fyrir utan. Það er staðan. En þetta eru gríðarlega dýrar framkvæmdir og munu taka mikinn pening af fjárveitingum til samgöngumála.