157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

samgöngur til Vestmannaeyja.

[10:57]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Þetta var til skoðunar hér þegar ég var á þingi fyrir fimm árum. Þá var einmitt samþykkt þingsályktunartillaga um þetta. Síðan eru þessi ár liðin og það bólar ekkert á tillögum um það hvernig hægt er að gera þessa höfn eins og hún átti upphaflega að vera. Hún er ekki að þjóna tilgangi sínum, hæstv. ráðherra, hún er ekki að gera það. Það þarf að laga hana og það þarf að komast að niðurstöðu um hvernig eigi að gera það og hvernig eigi að koma samgöngum til Vestmannaeyja í lag.

Ég ætlaði einnig að spyrja hæstv. ráðherra um flug til Vestmannaeyja. Það er samningur frá því í fyrra, sem gerður var við Mýflug, um fjögur flug í viku frá byrjun desember til loka febrúar, þ.e. í þrjá mánuði. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hyggst hæstv. ráðherra koma til móts við óskir Eyjamanna um að lengja í þessum tíma með tilliti til þess að nú eru rúmir tveir mánuðir þar til flug hefst og einnig hvort ráðherra hyggst fjölga vikulegum ferðum í ljósi þess að erfitt er, t.d. fyrir þá sem leita sér læknis, að nýta sér svo stopult flug sem fjögur flug í viku eru?