157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

samgöngur til Vestmannaeyja.

[10:59]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Varðandi það sem hefur verið til skoðunar í mörg ár með varnargarð við Landeyjahöfn þá er bara mjög margt til skoðunar og hafa verið margar framkvæmdir til skoðunar í mörg ár þegar kemur að vegasamgöngum á Íslandi. Vil ég þar t.d. nefna stórframkvæmdir á vegum landsins.

Það kemur vissulega til greina að halda fluginu áfram. Þetta hefur verið tímabundið flug. Þetta er stysta flugið í áætlunarflugi landsins, milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Meira að segja gæti komið til greina að það yrðu rafflugvélar sem myndu sinna þessu flugi í framtíðinni. Ég mun ekki, og ég hef sagt þetta margoft, upplýsa um það sem kemur fram í samgönguáætlun. Ég mun mæla fyrir samgönguáætlun í lok október eða byrjun nóvember og þar mun koma kafli sem lýtur að flugi innan lands (KGH: … bregðast við núverandi ástandi.)

(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð.)

og þá mun koma fram hvað það er. Núverandi ástand í samgöngum til Vestmannaeyja tel ég bara vera að mörgu leyti mjög gott. (Forseti hringir.) Íslenska ríkið er að setja milljarða króna í að halda höfninni opinni. Vissulega er Herjólfur í slipp en þessi skip þurfa að fara í slipp og ástandið er þannig núna. (Forseti hringir.) Það hefur þurft að sigla þrjá og hálfan tíma upp á land núna og það er bara þannig sem það er. (Forseti hringir.) Það verður þannig þegar Herjólfur fer í slipp, svo einfalt er það.

(Forseti (ÞSv): Forseti beinir því til hæstv. ráðherra og hv. þingmanna að hvort tveggja virða ræðutíma og vera ekki með framíköll.)