framboð fjarnáms við Háskóla Íslands.
Virðulegi forseti. Það er ekki í boði — þetta er svar sem fólk af landsbyggðinni fær þegar það er að sækjast eftir því að komast í fjarnám á ólíkum námsbrautum. Þetta er eitt af því sem var rætt á byggðaþingi ungs fólks á Höfn í Hornafirði nú fyrr í vikunni. Eins og hæstv. ráðherra málaflokksins þekkir þá er það hvort ungt fólk sér framtíð í að búa í sinni heimabyggð nátengt möguleikum í menntun. En hvaðan koma þessi svör? Koma þau frá einkareknum háskóla í miðbænum eða frá kennurum sem eru að kenna fag sem þarfnast mjög sérhæfðrar þekkingar, í samstarfi við spítala, t.d. læknisfræði? Nei, nefnilega ekki. Þau koma frá stofnuninni sem við mörg hver höfum tengst, eða virðast koma þaðan, frá Háskóla Íslands, flaggskipinu sem við fjármögnum öll saman og hefur það hlutverk samkvæmt lögum að vera menntastofnun landsmanna, að miðla þekkingu til landsmanna. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er það að miðla þekkingu til sumra landsmanna en ekki annarra? Er þetta ekki skólinn sem við eigum öll að hafa aðgengi að?
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þess að tækni er ekki lengur hindrun, við getum ekki eftir Covid litið svo á að tæknin sé hér hindrun: Hyggst hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að fjarnám verði raunveruleiki á öllum námsbrautum háskólans eða öllum þeim þar sem það er hægt, sem er langstærsti hlutinn? Hefur hæstv. ráðherra átt samtal við nýjan rektor um málið og hefur hæstv. ráðherra haft það til skoðunar að breyta hreinlega lögum um opinbera háskóla, svo að þetta sé tryggt, ekki bara í orði heldur á borði?