157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

framboð fjarnáms við Háskóla Íslands.

[11:06]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég deili þessum áhuga sem hæstv. ráðherra lýsir hér. En ég verð að segja: Við höfum ekki tíma og þessi samfélög — við erum að tala um stóran hluta landsins okkar, fólk alls staðar að — hafa ekki tíma til að bíða eftir nýrri stefnu. Tæknin er til staðar. Ég hef sjálf verið háskólakennari. Ég hef kennt úr sama sæti á bænum sem ég er frá og ég beið áður eftir póstbílnum. Maður getur einfaldlega nýtt tæknina til að streyma sinni kennslu og það á við um nánast allt nám. Hitt er bara einhvers konar fyrirsláttur. Við sem sitjum á Alþingi og eigum að þjóna öllu landinu, við eigum ekki að leyfa að það sé ekki meiri hraði í þessu máli. Þess vegna óska ég eftir því að ráðherra svari því hvort hann hyggist breyta lögunum um opinbera háskóla til að tryggja það jafnræði sem aðgengi að menntun er. Ég vil líka fá að vita hvort úthlutanir, t.d. í gegnum Nýsköpunarsjóð námsmanna — frábært ef það á að fara að endurskoða ýmislegt þar, en í Nýsköpunarsjóði námsmanna sýnist manni að ekki sé jöfn dreifing. Kemur til greina hér, hæstv. ráðherra, að eyrnamerkja jafnvel hluta af fjármunum til dreifðari byggða landsins?