157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

framboð fjarnáms við Háskóla Íslands.

[11:07]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Já, það kemur alveg til greina. Það er ýmislegt sem er á okkar borði í mínu ráðuneyti sem einmitt er með áherslu á slíka hluti. Nýsköpunarsjóðurinn verður líka kannski að taka mið af því að við erum að upplifa ástand þar sem er fallandi aðsókn í STEM-greinar sem skipta okkur gríðarlega miklu máli til framtíðar þannig að það er margt sem þarf að hugsa þar. Það er ekki einfalt að breyta heildarlögum um háskóla en það er sannarlega eitthvað sem við getum skoðað. Það sem við erum fyrst og fremst að reyna að gera er að reyna að hvetja skólana til þess að vinna eftir því sem við teljum skynsamlegt í gegnum reiknilíkanið. Við viljum ekki ástand sem við höfum verið að sjá í löndum, ótrúlegustu löndum í kringum okkur, þar sem yfirvöld beinlínis koma og segja háskólunum fyrir verkum. Þeir lúta ákveðnu frelsi þannig að samtal, stýring og hvatning er það sem ég mun nota og ég hef aldrei legið á liði mínu í því að reyna að halda því á lofti að það er dreifð byggð í landinu og það þarf að sinna henni allri.