Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ólögleg veðmálastarfsemi hefur vaxið gríðarlega á Íslandi síðustu ár. Erlendar veðmálasíður hafa náð hér traustri fótfestu. Íslendingar veðja nú árlega fyrir tugi milljarða króna á þessum síðum. Veðmál á netinu eru ekki lengur jaðarstarfsemi, þetta er orðið stórt samfélagsmál og þetta er ekki aðeins íslenskt vandamál. Við sjáum sömu þróun í löndum í kringum okkur. Munurinn er sá að flest ríki hafa brugðist við með lagasetningu. Hér á landi er starfsemin ólögleg samkvæmt gildandi lögum en við erum samt ekki að takast á við hana. Löggjafinn þarf að bregðast við breyttri heimsmynd. Fyrirtækin starfa hér án afskipta og án skattlagningar. Ríkissjóður verður þar með af umtalsverðum tekjum sem annars gætu runnið í heilbrigðismál, menntun eða önnur samfélagsmál. En arðurinn er aðeins hluti málsins. Þetta snýst ekki síður um samfélagslega áhættu. Í áhættumati ríkislögreglustjóra hefur komið fram að grunur sé um að ólöglegar veðmálasíður séu nýttar til peningaþvættis. Í nýjustu skýrslu Evrópusambandsins er áhættan af veðmálum á netinu metin mikil. Þrátt fyrir að fyrirtækin megi hvorki starfa né auglýsa hér sjáum við þau í sívaxandi mæli. Þau styrkja hlaðvörp um knattspyrnu og jafnvel stjórnmál. Þau hafa komið að viðburðum, svo sem útilegum menntaskólanema. Við sjáum tónlistarmenn, útvarpsmenn og áhrifavalda klæðast í fatnaði merktum þessum fyrirtækjum, bæði í vinnu og frístundum. Þannig er ólögleg starfsemi orðin eðlileg í augum ungs fólks.
Virðulegi forseti. Við þurfum líka að horfa á áhrif veðmála á íþróttirnar sjálfar. Þegar fjárhæðirnar verða mikilvægari en leikurinn sjálfur skapast hvati til að hafa áhrif á úrslit og framgang keppna. Það getur verið af hálfu leikmanna, dómara eða jafnvel áhorfenda. Þetta er tvíþætt vandamál, annars vegar stöðugt áreiti og hótanir gagnvart íþróttafólki og hins vegar freistnivandi þeirra sem taka þátt í leiknum. Hvorugt samræmist gildum íþróttahreyfingarinnar um sanngjarnan leik og virðingu. Slíkt hefur einnig skaðleg áhrif á andlega heilsu leikmanna og getur leitt til kvíða, þunglyndis og brotthvarfs úr íþróttum.
Í mörgum löndum hafa komið upp mál þar sem leikmenn hafa verið beittir þrýstingi til að hagræða úrslitum. Þessi vandamál ná niður í yngri flokka. Þetta er ekki fjarlæg framtíðarsýn fyrir Ísland, þetta er þegar orðið veruleiki. Við höfum nýleg dæmi um íslenska leikmenn í keppnisbanni vegna veðmála og um einstaklinga tengda yngri liðum sem hafa fengið bein skilaboð frá þeim sem veðja á leiki þeirra.
Við vitum líka að þessi starfsemi grefur undan innlendum leyfishöfum sem hafa byggt upp þjóðarsátt um að ágóði skili sér til samfélagsins. Þar má líka gera betur en það er kannski önnur umræða. Árið 2023 skiluðu þessir aðilar 5 milljörðum í samfélagslega mikilvæg verkefni. Ólöglegu fyrirtækin hins vegar taka allan ágóðann út úr landinu án þess að skilja nokkuð eftir.
Alvarlegast er þó að starfsemin beinist að ungmennum og viðkvæmum hópum. Sá hópur sem spilar mest eru ungir karlar 18–25 ára. Tveir af hverjum tíu í þessum hópi spila peningaspil á netinu. Þeir eru jafnframt tvöfalt líklegri en aðrir samkvæmt rannsóknum til að glíma við spilavanda. 86% þeirra sem leita meðferðar hjá SÁÁ vegna spilafíknar eru að spila á netinu. Umsóknum hjá umboðsmanni skuldara fjölgar, einkum vegna ungra manna sem taka smálán til að fjármagna veðmál. Spilafíkn er gríðarlega alvarlegur sjúkdómur sem hefur alvarleg áhrif á þau sem við það glíma og allt þeirra nánasta umhverfi og hann getur verið lífshættulegur. Þetta er samfélagslegt vandamál.
Þess vegna spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra: Hvernig hyggst ráðherra bregðast við þessari ólöglegu starfsemi sem hefur náð svo djúpum rótum hér á landi? Hvernig verður tryggt að eftirlit með veðmálastarfsemi á netinu verði raunverulegt og virkt og hvernig hyggst ráðherra verja ungmenni og viðkvæma hópa sem nú þegar hafa lent í skuldavanda og fíkn vegna ólöglegra veðmála?
Virðulegi forseti. Ábyrgðin er okkar allra. Löggjafinn og framkvæmdarvaldið verða að setja skýr lög og viðurlög og tryggja eftirlit. En fyrst og síðast verðum við að verja unga fólkið okkar gegn þeirri ógn sem ólögleg veðlánastarfsemi er.