157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:14]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigurþóru Bergsdóttur fyrir að eiga frumkvæðið að þessari sérstöku umræðu um ólöglega veðmálastarfsemi. Ég finn það alveg að þetta er mál sem er að vakna til lífsins í almennri umræðu.

Samkvæmt lögum um happdrætti er óheimilt að reka happdrætti þar sem spilað er um peninga eða peningaígildi nema samkvæmt sérstakri lagaheimild. Í almennum hegningarlögum er líka bannákvæði við fjárhættuspilum og taka þau ákvæði til allrar annarrar happdrættisstarfsemi en þeirrar sem heimiluð er sérstaklega með lögum. Það er svona hinn lagalegi veruleiki í kringum málið.

Í sérstökum lögum, sérlögum, hafa félögin Íslensk getspá, Íslenskrar getraunir, Happdrætti Háskóla Íslands, Happdrætti DAS, Happdrætti SÍBS og Íslandsspil heimild til að reka afmarkaða happdrættisstarfsemi. Af því leiðir af sjálfu sér að erlend veðmálastarfsemi sem beinir starfsemi sinni að íslenskum borgurum fer í bága við lög. Þetta er lagalegur veruleiki málsins og svo er það pólitíska hliðin og hér eru auðvitað mjög skiptar skoðanir sem ég hugsa að séu rót þess að við erum í þessu tómarúmi sem við okkur blasir.

Það er óumdeilt að umsvif erlendrar veðmálastarfsemi hafa aukist verulega á síðustu árum. Árið 2021 setti þáverandi dómsmálaráðherra á fót starfshóp um þetta efni en ekki náðist samstaða innan hópsins og niðurstaðan var í reynd þríþætt. Þetta finnst mér líka kjarna og ramma inn pólitískan veruleika málsins. Við sjáum kannski hliðstæður í umræðu um áfengismál þar sem það er pólitískt mjög flókið að tala sig niður á niðurstöðu sem allir eru einhuga um. En samkvæmt gögnum sem starfshópurinn aflaði sér má gróft áætla að Íslendingar eyði um 10–12 milljörðum kr. í fjárhættuspil á erlendum veðmálasíðum á hverju ári. Það er um helmingur af heildarumfangi happdrættismarkaðarins hér á landi. Þetta eru tölur. Íslendingar eru samkvæmt þessu, séu þessar tölur réttar, ein mesta veðmálaþjóð Evrópu þegar við skoðum upphæðir sem fara í veðmál miðað við höfðatölu. Mér finnst líklegt að umfangið og fjárhæðirnar hafi ekki lækkað undanfarin ár heldur þvert á móti.

Um afleiðingar má vísa í rannsókn dr. Daníels Þórs Ólasonar en hann hefur unnið fjórar faraldsfræðilegar rannsóknir um þetta efni. Hin fyrsta var árið 2007 en þá kom fram að um hálft prósent þjóðarinnar sagðist hafa spilað peningaspil á erlendum vefsíðum. Síðasta rannsókninni eru frá 2023 og þá er hlutfallið komið upp í um 7%, frá hálfu prósenti upp í 7% á um 16 árum. Samkvæmt rannsókninni eiga líka um 0,7% fullorðinna Íslendinga líklega við spilafíkn að stríða og um 1,6% eru í verulegum vanda vegna þátttöku sinnar í peningaspilunum. Þetta eru líka tölur. Nýverið sagði Daníel í fjölmiðlum að fyrir um 20 árum hefðu fáir veðjað hér á landi á erlendum vefsíðum en nú sé um og yfir þriðjungur 18–25 ára karla sem svari því játandi að hafa gert þetta.

Staðan er þessi: Á Íslandi er ekki sérhæft eftirlit með erlendri veðmálastarfsemi. Það er ekki til staðar virkt eftirlit eða sértæk úrræði til að fylgjast með starfseminni. Annars staðar á Norðurlöndunum er eftirlit til staðar.

Varðandi lausnir þá komum við aftur inn á pólitískan veruleika málsins. Það eru ólíkar leiðir. Það er hægt að fara í það að leyfa þetta allt saman. Það er hægt að fara í það að banna. Það er hægt að fara einhverja miðjuleið um takmörkun og það er kannski það sem nágrannar okkar hafa verið að gera með svokölluðu leyfiskerfi. Með slíku fyrirkomulagi þurfa veðmálafyrirtæki að sækja um leyfi til eftirlitsaðila til að stunda starfsemi sína og leyfið þá bundið skilyrðum og eftirliti. Önnur leið er að hafa markaðinn lokaðan, eins og raunin á að vera hér á landi, og það er fyrirkomulagið í Noregi. Í fjölmiðlum hefur t.d. komið fram að Íslandsbanki hafi að eigin frumkvæði lokað á notkun greiðslukorta á veðmálasíðum hjá viðskiptavinum yngri en 18 ára. Erlendis eru aðilar sem stunda veðmálastarfsemi gjarnan skattlagðir miðað við hreinar tekjur og jafnframt oft það fyrirkomulag að markaðsaðilar standi straum af fjármögnun á eftirliti og forvörnum. Þetta er eitthvað sem er athyglisvert að hugsa um.

Ég vil í lokin bara að segja þetta: Ég fagna þessari umræðu og hún er mikilvæg. Ég hlakka til að hlusta á ólík sjónarmið þingmanna og vonandi að við getum talað okkur niður á einhverja niðurstöðu til að komast út úr því tómarúmi sem hér ríkir í dag.