Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég ætla bara að byrja á því að segja að mér finnst veðmálastarfsemi algjörlega ömurleg starfsemi, styð hana ekkert. Ég myndi banna börnunum mínum að veðja en sem hluti af löggjafanum þá höfum við ekkert í það að banna sjálfráða einstaklingum að taka ákvörðun um hvað þeir gera með sína fjármuni. Löggjafinn reyndi jú árið 1926 að setja þessi lög sem ég held að séu nánast enn óbreytt í gildi. Þetta bann hefur leitt til þess að Ísland er með enn eitt Evrópumetið, eða nánast, þar sem við stundum hvað mesta veðmálastarfsemi. Þegar hæstv. ráðherra kemur hér upp og segir að það séu þrjár leiðir, það sé að leyfa, það sé að banna eða millileið, þá vil ég nú bara útiloka þá leið að banna. Það er það sem við erum búin að vera að reyna, eða ekki reyna, en það hefur alla vega engan veginn virkað. Í nútímasamfélagi þar sem netið flæðir yfir allt þá er auðvitað ekkert hægt að banna þetta. Það er ekki hægt. Ég held að við þurfum bara að opna augu okkar fyrir því að það er ekki hægt að banna þessa starfsemi. Þar sem þessi ríkisstjórn hefur nú verið mjög áfjáð í að hækka skatta og ná í skatttekjur þá er sko sannarlega glufa þarna. Þarna skulum við ná í skatttekjur. Af hverju leyfum við þessum fjármunum að streyma út úr landinu án þess að taka af því skatta? Það blasir við að við þurfum að búa til regluverk þar sem þetta er leyft og skattar innheimtir af þessari starfsemi eins og annarri.
Ég get fyllilega tekið undir það að það er forvarnamál að upplýsa ungmennin okkar um þá áhættu sem felst í því að stunda veðmálastarfsemi. Að sjálfsögðu þurfum við að huga að því að þær skatttekjur sem koma inn af veðmálastarfsemi skili sér til þeirra mikilvægu aðila sem hingað til hafa haft sérleyfin og notið mjög góðs af því. Þá er ég sérstaklega að vísa í íþróttahreyfinguna sem er kannski að mörgu leyti líka okkar besta forvörn gagnvart því sem misbrestur er á eins og áfengi eða veðmálum. (Forseti hringir.) Ég vil hvetja íþróttahreyfinguna til að taka samtalið upp en ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að koma hér með lagaumgjörð sem heimilar þessa starfsemi en tryggir að skattar séu teknir af henni.