157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:27]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Þetta hafa verið býsna fróðlegar og markvissar umræður, verð ég að segja, og gagnlegt að taka þetta til umfjöllunar. Ef við reynum að kjarna þetta erum við að tala um að ólögleg veðmálastarfsemi sé mjög umfangsmikil og eftirlit með henni ekkert. Hún er ekki skattlögð. Ríkislögreglustjóri tengir hana við peningaþvætti og þar með hugsanlega skipulagða glæpastarfsemi. Eða fellur hún að einhverju leyti undir þá skilgreiningu? Við heyrum það líka í umræðunni að öll ríki Evrópu hafa gripið til einhverra ráðstafana í gegnum lagasetningu en ekki við. Það er vísað í starfshóp sem líklega sló Íslandsmet í að klofna. Ég held að það hafi verið birt sjö sérálit í fimm til sjö manna hópi. Þannig að þetta mál hefur ekki fengið þá athygli eða verið tekið á af þeirri festu sem fullt tilefni virðist til.

Það hefur margsinnis verið rætt og það er sannarlega umdeilt eins og hér kom fram í umræðunni að mörg góðgerðar- og þjóðþrifamál hafa verið fjármögnuð með happdrættum, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Ég man eftir býsna glöggri úttekt Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands á því á sínum tíma þegar verið var að gera breytingar um þetta á þinginu. En ég held að við séum komin að ögn nýjum kafla í þessu þegar við erum að tala um netspil sem auðvitað virða engin landamæri. Það er hins vegar ekki hægt bara að fallast hendur og segja: Það er ekkert við því að gera. Ég vil bara minna á að býsna flókin löggjöf gildir um hvernig peningaþvætti yfirleitt er meðhöndlað. Þar er í raun ábyrgð fjármálakerfisins og greiðslumiðlunar mjög mikil og mörg sömu tæki geta alveg átt við hér ef löggjafinn gyrðir sig svolítið í brók og tekur á þessu. Það er alveg rétt hjá ráðherra (Forseti hringir.) að kannski kristallast þetta í að leyfa, banna eða takmarka. Ég heyri vilja hjá öllum flokkum, nánast alla vega, til að finna leiðir í því og ég held að það sé næsta vers.