Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka hv. málshefjanda, Sigurþóru Bergsdóttur, fyrir að taka upp þetta góða mál. Það er vandmeðfarið kannski, finnst einhverjum, og ég geri ekki lítið úr því en í mínum huga er þetta mál ákveðin lexía í því hvernig vel meinandi andstæðingum frelsisins verður oft, þegar upp er staðið, kannski ekki alveg ágengt í áætlunum sínum því að mannheimar eru þess eðlis að þeir finna sínar leiðir. Í þessu máli er borðleggjandi og blasir við að á Íslandi er einna ströngust löggjöf um veðmálastarfsemi en þátttaka Íslendinga í veðmálastarfsemi er meiri en gengur og gerist. Einhverra hluta vegna er það yfirleitt tilhneiging löggjafans að stíga ekki inn í vandmeðfarna hluti og í þessu máli er það þannig að lögin hafa ekki tekið breytingum í um 15 ár og á meðan hefur veðmálastarfsemi ýmiss konar vaxið fiskur um hrygg, svo mikið að í áætlun Viðskiptaráðs fyrir um ári síðan er áætlað að um 20 milljarðar fari af hálfu Íslendinga í þessa starfsemi og þar af leiðandi helmingurinn tæplega í þá erlendu.
Ég fagna þessari umræðu og fagna orðum hæstv. ráðherra um að hér verði að stíga skynsamleg, raunhæf skref til þess að við horfumst í augu við að þessi starfsemi er hér, það sé skynsamlegra að búa til einhvers konar reglur, hvort það sé starfsleyfi eða hvað það er hef ég kannski ekki endilega vit á, því þótt það væri ekki nema brotabrot af þeim tæplega 10 milljörðum sem fara úr landi til erlendu aðilanna sem færi í forvarnir eða aðstoð til þeirra (Forseti hringir.) sem eiga vissulega við vanda að etja varðandi þessa starfsemi þá myndi það gera gæfumuninn, brotabrot af þessum 10 milljörðum. (Forseti hringir.) Þannig að við skulum nálgast þetta af skynsemi og frelsi því það er alltaf betra þegar allt kemur til alls.