157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:34]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég fagna þeim anda sem svífur hér yfir í ræðum þingmanna, þ.e. þeirri áherslu sem mér hefur fundist þingmenn leggja á það að bregðast við með öðrum hætti en bönnum, lagabanni og öðrum bönnum, einhverjum höftum á þessu, heldur miklu frekar með fræðslu og forvörnum og ég get tekið undir það. Við sem erum orðin miðaldra erum kannski ekki alveg í takt við þessa þróun sem er að gerast en ég hef þó borið gæfu til að vera innan um mikið af ungu fólki og ég greini það að þetta er vaxandi áhugamál margra. Þetta er ekki nýtt áhugamál. Veðmálastarfsemi á netinu hefur viðhafst í yfir áratug þannig að þetta er ekki nýtt, þetta er ekki nýtilkomið. En manni bregður óneitanlega við að sjá ungt fólk eyða einhverjum fjármunum, ekki kannski allir miklum fjármunum en þetta er orðinn ákveðinn lífsstíll að veðja á t.d. íþróttakappleiki af ýmsu tagi. Menn bera því við að þetta gefi kappleiknum eitthvert gildi og vissulega getur það svo sem verið þótt ég tengi ekki sjálf við slíkt. En þetta getur verið varhugaverð þróun í tilfelli sumra og ég held að það sé heillavænlegast að bregðast við því, þeim réttmætu áhyggjum að mínu mati, með forvörnum og umræðu um þetta við sérstaklega ungmenni sem stunda sjálf íþróttir. Þar er vettvangurinn til að fræða þau í fyrsta sinnið en svo þegar fólk er orðið fullorðið þá auðvitað ber það ábyrgð á sjálfu sér. Það er kannski einkum það líka sem þarf að hafa í huga og halda að unga fólkinu okkar, að þegar allt kemur til alls þá ber það sjálft ábyrgð á sjálfu sér og hver er sinnar gæfu smiður í þessum efnum eins og öðrum.