157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:36]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Rannsóknir meðal ungmenna á aldrinum 16–18 ára árið 2004 sýndu að fjárhættuspil eru gríðarlega útbreidd. Um 97% ungmenna höfðu spilað peningaspil á síðustu 12 mánuðum, 79% einu sinni eða oftar á sama tímabili og 10% spiluðu vikulega eða oftar. Áætlað er að um 2,7% ungmenna glími við verulegan spilavanda. Mín eigin rannsókn sem ég gerði í samstarfi við prófessor Daníel Þór Ólason og fleiri leiddi í ljós að 16% nemenda höfðu veðjað á netinu. Niðurstöður sýndu vaxandi áhættu tengda fjárhættuspilum og veðmálum á netinu. Þetta voru niðurstöðurnar árið 2004 og 2005. Síðan þá hefur aðgengi og algengi fjárhættuspila margfaldast.

Frú forseti. Það skiptir spilafíkillinn engu máli hvort veðmálið eða fjárhættuspilið er á vegum innlendra eða erlendra aðila, hvort starfsemin er lögleg eða ólögleg, það er aðgangurinn sem skiptir öllu máli. Ólögleg veðmálastarfsemi krefst skýrra viðbragða og aðgerða. Það er nauðsynlegt að stöðva auglýsingar um fjárhættuspil og veðmál, greiðslumiðlun og starfsemi erlendra ólöglegra fyrirtækja sem beina starfsemi sinni að íslenskum notendum. Sérstaklega þarf að vernda börn og ungmenni fyrir þessum freistingum. Það er líka nauðsynlegt að varpa ljósi á það hvers vegna íslensk fjármálafyrirtæki, jafnvel banki í ríkiseigu, eru milliliðir í greiðslum til ólöglegra fyrirtækja og hvers vegna lögregla og eftirlit virðast ekki grípa inn í þessa starfsemi með fullnægjandi hætti.