157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:38]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það gleður mig að sjá hversu þessi umræða hefur skapað skemmtileg og bara góð skoðanaskipti. Ég finn það að fólk í þessum sal hefur líka áhyggjur af þessum málum og upplifir þær en skoðanir eru vissulega skiptar meðal þingmanna hér. Að mínu mati er það að segja að ekki sé hægt að stjórna þessu og að bönn virki ekki ábyrgðarlaus afstaða. Þessi starfsemi er hér svo sannarlega en við eigum ekki að sætta okkur við að þessi fyrirtæki vaxi og herji á fólk án takmarkana. Það verður að nefna það að þessi fyrirtæki beita mjög ósvífnum aðferðum í markaðssetningu til að ná sem best til barna og ungmenna og við verðum að hafa getuna til að minnka þau áhrif og setja umgjörð um hvernig megi markaðssetja og annað og stoppa þessa markaðssetningu.

Það sem skiptir auðvitað mjög miklu máli og skiptir máli í öllum forvörnum er að takmarka aðgengi, ef við skerðum aðgengi þá minnkar notkun. Við höfum fyrirmynd núna, Íslandsbanki og Indó hafa lokað á viðskipti þessara fyrirtækja við börn og það hefur vonandi minnkað þá starfsemi. Aðrir bankar hafa ekki gert það en ef allir bankarnir myndu t.d. takmarka eða loka á þessi viðskipti, sem eru svo sannarlega ólögleg, þá myndi aðgengi minnka og það minnkar notkun. Auðvitað munu allir alltaf finna leiðir fram hjá öllum takmörkunum en takmarkanir virka og það sýna rannsóknir og þannig virkar forvarnir.

En forvarnir felast ekki bara í þessum hömlum. Við þurfum að skapa jákvæðan valkost. Við getum gert það í gegnum íþróttafélögin, við þurfum að vinna með foreldrum og við þurfum að fá fyrirmyndirnar úr samfélaginu, íþróttafólk, tónlistarmenn og áhrifavalda, til að segja skýrt: Veðmál eru ekki hluti af íþróttum. Við vitum að við munum aldrei uppræta þetta en við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stemma stigu við þessum vágesti. Með sameiginlegum aðgerðum, með löggjöf, eftirliti og forvörnum getum við reynt að verja samfélagið og unga fólkið okkar.