157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:41]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég ítreka þakkir mínar til hv. þm. Sigurþóru Bergsdóttur fyrir þessa umræðu. Ég er nú sjálf svona frjálslyndismegin í tilverunni en af því að hér er sérstaklega verið að ræða börn og ungmenni þá held ég að skipti miklu að einblína og horfa mjög markvisst til forvarna, til fræðslu til þess að ná betur utan um þennan veruleika og ég held að stóra svarið sé einhvers konar umgjörð samhliða eftirliti.

Það er veruleiki í málinu, pólitík — þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, skipaði hóp 2021 til að reyna að ræða sig niður á einhverja niðurstöðu. Eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson orðaði það svo skemmtilega sló sá hópur sennilega Íslandsmet í klofningi. Það var síðan þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson sem tók við skýrslunni. Þetta mál strandaði einfaldlega. Það er pólitískur veruleiki málsins. Tveir dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins komust ekki áleiðis með þetta.

Mér finnst skipta máli hér að nefna í þessu samhengi varnir gegn peningaþvætti. Það kom málshefjandi inn á en það er auðvitað veruleiki málsins, áhættumat ríkislögreglustjóra, áhætta tengd fjárhættuspilum hjá erlendum rekstraraðilum er metin mikil. Við getum ekki alveg litið fram hjá þessu. Þetta eru þekktar aðferðir við að þvætta fjármuni í gegnum fjárhættuspil á netinu. Það eru vísbendingar um að verið sé að nýta fjárhættuspilin til peningaþvættis og það er sá angi sem lögregla ekki síst er að horfa á. Það er þó ekki séríslenskt vandamál en í áhættumati Evrópusambandsins er áhætta tengd fjárhættuspilum á netinu líka metin mikil. Það segir okkur kannski líka þetta: Við getum leyft, við getum bannað, við getum takmarkað. Við þurfum samt alltaf að vera meðvituð um félagslegar afleiðingar háttsemi okkar mannanna, þannig að umgjörð og eftirlit held ég að hljóti að ná best utan um þessa starfsemi.