157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:43]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðar. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu.

Þann 1. apríl 2023 tóku gildi ný heildarlög um leigubifreiðar. Með lögunum voru m.a. afnumdar fjöldatakmarkanir á útgáfu starfsleyfa ásamt afnámi stöðvaskyldu og gjaldmælaskyldu þegar samið er um verð fyrir fram. Í aðdraganda breytinganna var ekki tekið nægjanlegt tillit til sjónarmiða leigubifreiðastjóra og stéttarinnar í heild. Hagsmunasamtök þeirra lýstu sig alfarið andvíg breytingunum og töldu þær myndu leiða til lakari þjónustu og aukins óöryggis bæði fyrir farþega og ökumenn. Þingflokkur Flokks fólksins greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og varaði sérstaklega við neikvæðum afleiðingum þess, sem hafa svo sannarlega komið fram. Má telja að hér sé klassískt dæmi um lög sem hafa leitt til verra ástands í samfélaginu sem er mikilvægt að snúa við.

Í gildandi lögum er bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að lögin skuli sæta endurskoðun með tilliti til reynslu á þeim breytingum sem í þeim fólust. Sú endurskoðun skyldi hefjast eigi síðar en 1. janúar 2025. Það er mat mitt að síðan lögin tóku gildi hafi verulegir ágallar komið fram. Traust almennings til leigubifreiðaþjónustunnar hefur minnkað og ýmislegt færst til verri vegar. Frá gildistöku laganna hafa birst fréttir af alvarlegum atvikum, þar á meðal ofbeldi, áreitni og svindli. Afnám gjaldmælaskyldu, þegar samið er um fyrir fram, hefur skapað svigrúm fyrir ósanngjarna verðlagningu, sérstaklega gagnvart ferðamönnum. Þá hefur skortur á eftirliti og möguleiki leigubifreiðastjóra til að starfa án tengsla við stöð skapað augljósa öryggishættu fyrir farþega. Þannig hefur ríkt óvissuástand og glundroði á markaðnum frá gildistöku laganna. Leigubifreiðastjórar hafa sjálfir lýst yfir áhyggjum af versnandi starfsumhverfi og afkomu sem aftur hefur skapað jarðveg fyrir versnandi viðskiptahætti. Ég taldi því nauðsynlegt að bregðast við ástandinu á leigubifreiðamarkaði strax á síðastliðnu vorþingi.

Með frumvarpinu er lagt til að heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án sérstaks starfsleyfis fyrir rekstur slíkrar stöðvar verði felld brott. Stöðvaskylda verði þar með samræmd og gildi án undantekninga fyrir alla leyfishafa. Breytingin mun hafa bein áhrif á um 100 af alls 993 starfsleyfishöfum. Þessir aðilar sem njóta undanþágu samkvæmt 2. málslið 1. mgr. 9. gr. gildandi laga halda þó leyfi sínu þar til það rennur út. Þeir þurfa hins vegar að uppfylla allar kröfur sem frumvarpið gerir til leigubifreiðastöðva. Í einföldu máli þýðir það að leigubifreiðastjórar þurfa að vera skráðir hjá viðurkenndri leigubifreiðastöð sem veitir starfseminni aðhald. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja öryggi farþega, eðlilega verðlagningu og skilvirkt eftirlit með þjónustunni. Hver sem er getur stofnað leigubifreiðastöð svo lengi sem viðkomandi uppfyllir skýrar kröfur um eftirlit og upplýsingasöfnun. Rekstrarleyfishöfum er gert að tryggja skráningu greiðslna og skila nauðsynlegum upplýsingum til þeirrar leigubifreiðastöðvar sem þeir tilheyra svo hún hafi yfir þeim að ráða og geti sinnt eigin skyldum. Þær upplýsingar varða til að mynda ökumann leigubifreiðar, leigubifreiðina sjálfa, gjaldmæla og greiðslur.

Leigubifreiðastöð skal jafnóðum safna og geyma upplýsingar úr svokallaðri rafrænni skrá á stafrænu formi. Um er að ræða upplýsingar um upphafs- og endastöð hverrar seldrar ferðar og staðsetningu bifreiðarinnar meðan á ferð stendur. Skylda til varðveislu gagna úr rafrænu skránni í 60 daga er færð alfarið frá rekstrarleyfishafa yfir til leigubifreiðastöðvarinnar. Að auki er kveðið á um árlega úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðva svo öryggi og gæði gagna séu tryggð.

Loks er leigubifreiðastöð gert að bjóða farveg fyrir kvartanir neytenda er varða verð og gæði þjónustu. Leyfishöfum verði um leið gert að upplýsa og leiðbeina neytendum um möguleika til að kvarta til annarra viðeigandi stjórnvalda, svo sem lögreglu og Samgöngustofu. Leigubifreiðastöð ber einnig að tilkynna viðeigandi stjórnvöldum verði hún vör við eða hafi hún grun um að leyfishafi fari ekki að lögum. Skyldur stöðvar geta í einfaldri mynd falist í stafrænu eftirliti og t.d. verið í formi smáforrits eða apps. Því er ekki verið að draga úr aðgengi eða samkeppnishæfni fyrirtækja eins og Über, Bolt og annarra sambærilegra fyrirtækja og er þetta mikilvægt atriði.

Leigubifreiðaakstur er ómissandi sólarhringsþjónusta fyrir almenning sem tengir saman aðra samgöngumáta og kemur að gagni þegar aðrar samgöngur bresta. Þessi þjónusta er ekki síst mikilvæg fyrir viðkvæma hópa, svo sem fatlaða, aldraða og ferðamenn sem hafa ekki aðgang að öðrum ferðamáta. Með frumvarpinu eru stigin skref í þá átt að tryggja betur öryggi þjónustunnar þar sem bifreiðastöðvar veita aðhald sem og að stuðla að því að réttmætir viðskiptahættir séu stundaðir í greininni. Má hér benda á að samband leigubifreiðastöðvar og stjórnvalds, Samgöngustofu í þessu tilviki, er allt annars eðlis en samband leigubifreiðastöðvar og bílstjóra. Samband stjórnvalds og leigubifreiðastöðvar er einfaldlega miklu formlegra og allt aðrar kröfur gerðar samkvæmt stjórnsýslu til þessa sambands heldur en leigubifreiðastöðvar og bílstjóra. Breytingarnar munu styrkja rétt farþega og auðvelda lögreglurannsókn mála.

Um er að ræða fyrsta áfanga í þeirri vegferð að endurheimta traust almennings til leigubifreiðaþjónustu á Íslandi. Áfram verður unnið að breytingum á lagaumhverfi greinarinnar með það að markmiði.

Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins og vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem fylgir því. Það er mitt mat að samþykkt frumvarpsins komi til með að stuðla að auknu öryggi í leigubifreiðaþjónustu og bættu starfsumhverfi leigubifreiðastjóra.

Ég legg til að eftir 1. umræðu verði málinu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umræðu.