leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu, en ég verð að vera heiðarleg, frú forseti, með að mér þykir þetta eitt furðulegasta frumvarp sem hefur komið hér fram þar sem að mínu viti er það fullkomlega tilgangslaust gagnvart þeim áskorunum sem við vissulega stöndum frammi fyrir varðandi leigubílaumhverfið hér á landi, því miður. Hér vil ég vera alveg skýr. Ég geri ekki lítið úr þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Það er ekki boðlegt að um þessa starfsemi ríki ekki traust og að við höldum ekki á þessu eins og fólk. Hér komum við að kjarna málsins. Það er algjör fyrirsláttur og einhver óskiljanleg pólitísk sýndarreyksprengja að ýja að því eða segja það fullum fetum að núgildandi lög hafi eitthvað að gera með þær áskoranir, því að svo er ekki.
Framkvæmdinni er hins vegar ábótavant, það er framkvæmdin, sem er undir eftirliti hvers? Hæstv. ráðherra og vegna yfirstjórnunarheimilda hans og ríkulegra reglugerðarheimilda sem núgildandi lög fela honum á hann að tryggja að framkvæmdin sé í lagi. Að framkvæmdin sé í lagi sem núgildandi lög kveða á um, t.d. til þess að vita að gjaldmiðlar séu sýnilegir, t.d. að vita að framkvæmdin með starfsleyfum sé í lagi, t.d. að vita að það sé ekki svindlað á prófi, t.d. að vita að leigubílstjórar séu ekki með dóm á bakinu eða ráðist á farþega án eftirlits eða afleiðinga. Allt eru þetta atriði sem eru algerlega forkastanleg, ég tek undir það að sjálfsögðu, en það er ráðherrans að passa að framkvæmdir séu í lagi. Það er ekkert í þessu frumvarpi sem tekur á þessum atriðum. Þetta er framkvæmdarmál. Það er ráðherra að leysa úr því inni á sinni skrifstofu. Það er það eina sem þarf að gera.