leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en verð að segja að ég hvet hann til að lesa núgildandi lög fyrst hann spyr hér, þ.e. varðandi þessi atriði sem núgildandi lög aðstoða ekki með, því að það er algjörlega kýrskýrt að öll þessi atriði sem eru ekki í lagi, það er reglugerðarheimild ráðherra um alla þá framkvæmd og eftirlit sem er á hans herðum. Núgildandi lög ná vel utan um það og það sem meira er; frumvarp ráðherra tekur í engu á þeim atriðum, ekki einu. Hins vegar er gert mikið úr því að hér verði aftur sett á stöðvaskylda. Gott og vel, það kannski hljómar ágætlega en það er algjörlega tilgangslaus breyting. Hún mun engu breyta varðandi þessi atriði og fyrir utan það, frú forseti, hefur ESA gert athugasemdir þar sem stöðvaskyldan brýtur gegn EES-samningnum. Hvað segir Viðreisn við þessu? Má stundum fara eftir EES-samningnum og stundum ekki? Voru þetta kannski hrossakaupin gegn bókun 35.
Ég vil að lokum segja við hæstv. ráðherra: Ég er með honum í liði um (Forseti hringir.) að auðvitað verður leigubílaumhverfið hér að vera ásættanlegt. Þetta er ekki leiðin, það þarf að laga framkvæmdina en passa upp á frelsið því að staðan (Forseti hringir.) eins og hún var, var einfaldlega þannig að fólk fékk ekki leigubíla, hér í höfuðborginni alltént.