157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:58]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að mati Samgöngustofu er ógerningur að sinna eftirliti með fullnægjandi hætti með öllum rekstrar- og atvinnuleyfum sem við höfum þar sem um svo mikinn fjölda er að ræða. Stofnunin sinnir ekki vettvangseftirliti, það gerir lögreglan, né hefur hún úrræði til að bregðast við ýmsum málum sem koma upp. Það er nú bara þannig.

Stjórnvald getur ekki fylgst með hverri einustu ferð sem leigubifreiðastjóri fer eða fylgst með hverjum einasta leigubifreiðastjóra á daglegum basis. Það er ekki hægt. ESA hefur haft opið mál gegn Íslandi vegna leigubifreiðamarkaðarins síðan árið 2017. ESA er enn með athugasemdir við núgildandi fyrirkomulag samkvæmt lögunum frá 2023. Þeir eru enn þá með athugasemdir við það og þeir segja það nákvæmlega í bréfi, ef ég man það rétt, að það séu engin markmið á bak við að hafa þetta blandað kerfi, bæði stöðvaskyldu og ekki stöðvaskyldu. Hver eru markmiðin með því? Við förum þá leið að hafa stöðvaskyldu, þriðja leiðin er að hafa enga stöðvaskyldu. Við erum með þrjár leiðir; blandað kerfi, stöðvaskyldu og ekki stöðvaskyldu. Við tökum núna stöðvaskylduna vegna þess að það er annað samband milli stöðvar og leigubifreiðastjóra heldur en milli stjórnvalds og bílstjóra. Það er ástæðan fyrir því.