157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:00]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Einhvern veginn var þetta nú allt saman fyrirséð, þ.e. að við ættum eftir að ræða leigubíla frekar eftir að síðustu ríkisstjórn tókst að klúðra algerlega leigubílamarkaðnum hér á landi þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð, bæði úr pólitískum áttum, þar á meðal frá Miðflokknum, og ekki síst á meðal þeirra sem störfuðu í faginu og þekktu hvað best til og sáu auðvitað fyrir sér hvaða afleiðingar þessi breyting myndi hafa. Þess vegna ber að fagna því að málið skuli vera komið aftur inn í þennan sal og að gerðar verði einhverjar tilraunir til þess að betrumbæta það tjón sem varð hér þegar lögunum var breytt á sínum tíma.

Hitt er annað mál að þetta frumvarp eitt og sér er ekki að fara að laga vandamálið í heild. Það er gerð tilraun til að taka á tiltölulega afmörkuðum þætti málsins og mér skilst, nú er ég búinn að tala við allmarga leigubílstjóra, að það skref sé til bóta. En því fer svo fjarri að leigubílamarkaðurinn á Íslandi verði kominn í lag bara við það eitt að við samþykkjum þetta frumvarp, þ.e. að öryggi farþega verði tryggt bara með því að samþykkja þetta frumvarp. Þeir sem trúa því vaða í villu og svíma, eins og er orðið tískuorð í þessum sal núna.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort það megi eiga von á frá honum á næstunni, ég sé ekkert slíkt í þingmálaskrá, að það verði t.d. gerð sú lágmarkskrafa til leigubílstjóra að þeir geti gert sig skiljanlega á íslensku og að þeir geti skilið íslensku því að það eitt og sér er risastórt öryggismál fyrir neytendur og ekki síst ákveðna hópa neytenda.