157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:02]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og ég sagði í ræðu minni er um að ræða fyrsta áfanga í þeirri vegferð að endurheimta traust almennings til leigubifreiðaþjónustu á Íslandi. Ég ákvað strax eftir að ég tók embætti í desember síðastliðnum, bara strax í janúar, að koma með breytingu á þessum lögum, taka út einfaldasta hlutann og mikilvægasta sem er öryggi farþega. Þess vegna mælti ég fyrir frumvarpi því sem ég er núna að endurflytja, mæli fyrir því aftur. Það lýtur að því að tryggja öryggi farþega með þeim hætti sem ég hef lýst hér í framsöguræðu. Ég tel að þetta eina frumvarp muni ekki leysa öll vandamál en þetta er mikilvægt fyrsta skref, gríðarlega mikilvægt fyrsta skref. Vinna starfshópsins mun halda áfram engu að síður, auk þess sem verið er að vinna í breytingu á reglugerð. Þetta frumvarp er fyrsti liðurinn, svo komum við með reglugerðarbreytinguna og síðan vonandi annað frumvarp til að styrkja umhverfi þessara starfsgreina enn þá betur.

Ég tel mjög mikilvægt, og gott að heyra að hv. þingmaður sé sammála mér, að þetta hafi verið óljóst sem var samþykkt hér á sínum tíma og við erum að reyna að bæta úr því máli. Ég tel að við getum ekki lifað við þennan markað eins og hann er í dag, þetta ófremdarástand, og ég vona að allur þingheimur sé sammála mér hvað það varðar.