157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:04]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra hvað það varðar að þau lög sem fóru hér í gegn á sínum tíma voru ólög, enda var málflutningur Miðflokksins alveg skýr á þeim tímapunkti og varaði mjög eindregið við þessari vegferð og spáði fyrir um tilteknar afleiðingar sem núna hafa allar gengið eftir og þóttu þó spárnar á sínum tíma, að ég hygg, talsvert djarfar. En, eins og ég segi, þær hafa gengið eftir og í raun langt umfram það sem við þorðum að spá.

Það er annað sem mig langar að nefna og spyrja hæstv. ráðherra að, þ.e. hvort það megi líka eiga von á einhverju efni frá hæstv. ráðherra sem nær utan um hegðun bílstjóra utan ökutækis því að það eru ekki öll brot sem eiga sér stað innan ökutækisins eða á leiðinni frá A til B. Við höfum séð ítrekað efni þess sem sýnir okkur fram á það að framkoma tiltekinna bílstjóra fyrir utan ökutækið er eitthvað sem við getum ekki sætt okkur við að viðgangist í okkar samfélagi.