157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:05]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég gleymdi að svara spurningunni varðandi íslenskuna en tel rétt og hef verið að skoða sérstaklega, eins og ég sagði í andsvari hér áðan, að prófin séu tekin á íslensku. Ég tel líka rétt að námskeið séu á íslensku. Við tölum enn þá íslensku í þessu landi og ég get vísað til laga sem voru samþykkt fyrir nokkrum árum síðan þar sem var miðað að því að styrkja íslenskuna í íslensku samfélagi. Mér finnst bara mjög eðlilegt að fyrir þetta mikilvæga þjónustustarf sé bæði námskeið og próf á íslensku og að bílstjórarnir kunni íslensku.

Varðandi hegðun bílstjóra utan ökutækis gerir leyfisveitingin kröfu um að þeir hafi gott orðspor og að þeir hafi hvorki gerst sekir um smávægileg brot né stórfelld brot sem lúta t.d. að 23. kafla almennra hegningarlaga og svo 12. kafla almennra hegningarlaga. Í lögunum eru heimildir til leyfissviptingar séu ríkar ástæður til að ætla að skilyrði fyrir sviptingu séu fyrir hendi, t.d. að töf á sviptingu geti haft í för með sér almannahættu eða leyfishafi hafi gerst sekur um vítavert hátterni og því varhugavert að hann njóti leyfis áfram. Þetta kemur skýrt fram í 16. gr. laganna og ég tel mikilvægt að skýrar heimildir séu fyrir Samgöngustofu að beita þessum heimildum.