157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:07]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Þetta er náttúrlega endurflutt frumvarp. Miðflokkurinn hafði á sínum tíma efasemdir um frumvarpið sem nú er verið að breyta og niðurstaðan þá var að setja inn endurskoðun. Það var mikilvægt og virkilega gott. Áhrifin komu mjög hratt fram. Mig langar að spyrja ráðherrann út í vinnu starfshópsins sem mér skilst að sé enn að störfum. Ráðherra leiðréttir mig ef þessi starfshópur hefur lokið störfum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í atriði sem þessi starfshópur hefur verið að skoða og þykja skipta máli að hans mati og enn er ákveðið að geyma. Af hverju er ekki komið fram núna heildarfrumvarp sem tekur á öllum þeim atriðum sem ráðherra telur ekki hægt að afgreiða með reglugerðarbreytingu? Nú er liðið hálft ár frá því að síðasta frumvarp var lagt fram af hálfu hæstv. ráðherra og nægur tími ætti að hafa verið til að bæta inn öllum þeim breytingum sem væntanlega þarf að gera.

Mig langar að spyrja ráðherra hver staðan er, hver tímalínan er varðandi skil á vinnu starfshópsins ef hann hefur ekki skilað. Af hverju er ekki komið fram núna með stærra heildarfrumvarp sem tekur á þeim vanda sem þarf að leysa? Ég vil líka nefna það að síðustu að ég held að við séum auðvitað öll hér sammála um að öryggi farþega er það sem alltaf skiptir máli. En ég tel að þetta frumvarp eitt og sér leysi ekki þann vanda.