leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég vil segja að minn flokkur var líka algerlega á móti þessu frumvarpi á sínum tíma. Áhrifin hafa verið miklu meiri en við gerðum okkur grein fyrir þá, svo ég segi bara alveg eins og er, gríðarlega mikil áhrif eins og við vitum af fréttum og af samfélagsumræðunni. Af hverju er ekki komið heildarfrumvarp fram núna á þessu þingi? Það er vegna þess að vinnunni var frestað út af forgangi við frumvarpsvinnu og reglugerðarvinnu, þ.e. við erum að vinna núna að breytingu á reglugerðinni og svo hefur verið vinna líka í því að undirbúa það að leggja þetta aftur fram. Reglugerðarvinnan er fyrsta atriðið og svo er þessi vinna bara þess eðlis að hún tekur tíma. Ég tel að þær breytingar sem koma í framhaldinu muni lúta að öðrum þáttum en t.d. þessum varðandi leyfisveitingar, mögulega að sviptingum líka, að skýra ákvæðin þar. Svo eru fleiri atriði sem skipta máli. Það vannst einfaldlega ekki tími til að koma með heildarfrumvarp núna, svo ég segi bara alveg eins og er.