157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:12]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp sem við erum að ræða hér er fyrsti áfanginn í endurskoðuninni. Varðandi seinni hluta endurskoðunarinnar vonast ég til þess að það frumvarp verði tilbúið næsta haust. Varðandi atriði eins og svindl á prófi og íslenskuna þá er ég er ekki búinn að staðfesta nýja námskrá hvað varðar þessi mál. Ég er hins vegar búinn að óska eftir lögfræðilegu áliti frá lagaprófessor varðandi heimild mína til að krefjast þess í reglugerð að prófin yrðu tekin á íslensku og námskeiðin yrðu á íslensku. Það er komið í hús, ég á bara eftir að lesa það en ég geri ráð fyrir að ég eigi að geta gert þetta í reglugerð. Mér finnst sjálfum, sem lögfræðingi, að ég eigi að geta gert þetta í reglugerð, sérstaklega af því að við erum hluti af norrænum rétti enn þá. Þetta er gert með reglugerðarheimild í Noregi og Danmörku eins og ég kom inn á áðan. Líka varðandi svindl á prófum þá finnst mér að það ætti heima í reglugerð, að sjálfsögðu. Ég hef ekki enn þá vitað til þess að það séu haldin einhvers staðar próf þar sem svindl á prófum sé leyft, þannig að ég held að það sé bara eðli málsins (Forseti hringir.) samkvæmt og öll þau atriði ættu vonandi að vera hægt að leysa farsællega í reglugerð. En að sjálfsögðu mun ég koma með frumvarp næsta haust hvað lýtur að þeim málum sem ekki er hægt að leiðrétta í reglugerð.