157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:13]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Aðeins örfá orð inn í þessa umræðu hér áfram, enda ekki mikill tími í andsvörum til að koma á framfæri kannski meira efni er varðar bæði þetta frumvarp og aðdraganda þess. Því ber auðvitað að fagna að nú skuli vera farin að hríslast um samfélagið þau varnaðarorð sem Miðflokkurinn hafði uppi á sínum tíma um afleiðingar þeirra breytinga á lögum sem þá voru í bígerð. Miðflokkurinn var einarður gegn þeirri breytingu og um það vorum við hæstv. ráðherra sammála hér í andsvörum áðan að þau lög voru ólög og það var algjörlega fyrirséð af hálfu Miðflokksins að þetta myndi leiða til, að mér liggur við að segja, stórslyss. Allt sem kom fram í málflutningi Miðflokksins á þeim tíma um þessa lagabreytingu hefur nú gengið eftir og það jafnvel með ýktari hætti heldur en við á sínum tíma höfðum einhvern veginn kjark til að spá um. Það breytir ekki því að svona er þetta orðið.

Mér er minnisstætt, frú forseti, eftir að þau lög fóru í gegnum þennan þingsal að þá voru þáverandi hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar sem létu frá sér efni á samfélagsmiðla um að nú hefði frjálsræðið sigrað afturhaldið í Miðflokknum. Hér er afurð sigursins, ástandið úti á götum á kvöldin, þjónustan við viðkvæma hópa, fatlaða, jafnvel eldri borgara, ástandið fyrir utan Leifsstöð. Þetta er eru afurðir stórsigursins sem unninn var á sínum tíma og af því að líkamstjáning skilar sér illa í pontu þá er rétt að geta þess hér sérstaklega að hv. þm. Jens Garðar Helgason hristir höfuðið af miklu kappi, svo mjög að ég hef áhyggjur af hálsliðum hans.

En áfram um þetta umræðuefni, frú forseti, sem kom fram í andsvörum hér og samskiptum okkar hæstv. ráðherra hér áðan af minni hálfu að gengur að sjálfsögðu alls ekki nógu langt til að tryggja öryggi allra farþega. Það er skref og þess vegna þykir mér líklegt að ég muni ekki þvælast fyrir hæstv. ráðherra í þessu máli en skrefið er hænuskref miðað við ástandið eins og það er þarna úti. Þess vegna voru vonbrigði að hlusta á samskipti hæstv. ráðherra hér áðan við hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur þar sem ég skildi svör hæstv. ráðherra á þá leið að enn væri talsvert langt að bíða verulegra umbóta í öryggismálum farþega sem nýta sér þessa þjónustu hér á landi. Það voru vonbrigði og vil ég því nota tækifærið í þessu stutta erindi mínu og hvetja ráðherra til frekari verka í þeim efnum og flýta þeim verkum sem kostur er.

Það er eitt sem þarf líka að vera með þegar við erum að fjalla um þetta og ég drap aðeins á því hérna áðan. Það er hegðun bílstjóra utan við ökutækið. Hæstv. ráðherra svaraði með tilvitnun í reglugerð en það er nægt aðgengi sönnunargagna nú þegar í umferð á öllum mögulegum tegundum samfélagsmiðla þar sem við fáum innsýn í það hvað er að gerast hér á kvöldin og næturnar og fyrir utan Leifsstöð, og íslensk stjórnvöld og fyrirtæki í eigu íslenska ríkisins eins og Isavia virðast algjörlega máttlaus að grípa þar inn í.

Í framtíðinni tel ég að við verðum auðvitað að prófa til réttinda í þessari atvinnugrein á íslensku. Það er algjörlega kýrskýrt í mínum huga. Það próf þarf að fara fram án aðstoðar túlks svo það komi fram við próftöku að sá er þreytir prófið hafi í það minnsta lágmarksskilning á íslenskri tungu því aðeins þannig getur hann veitt örugga þjónustu. Þú veitir ekki örugga þjónustu, jafnvel með aðstoð snjalltækja í dag — ef farþeginn talar eingöngu íslensku og er einhverra hluta vegna ekki notandi að snjalltækjum er öryggið farið. Það liggur fyrir og þess vegna er það sjálfsögð og eðlileg krafa að það sé hægt að eiga samskipti við þann sem veitir þjónustuna á íslensku.

Frú forseti. Aðeins að því svo mjög þreytandi getuleysi hins opinbera þegar mistök eiga sér stað hér í þessum sal og það verða til einhver ólög og það þarf að bregðast við, þegar farið er að starfa eftir nýjum lögum og það koma í ljós ágallar. Þá er kallað á viðbrögð af hálfu hins opinbera, til að mynda er varðar það tímabil þar sem liggur algjörlega fyrir, og ég veit að ráðherra hefur séð sömu gögn og ég í því máli hvað það varðar, að á ákveðnu tímabili var svindlað á prófum. Það liggja fyrir játningar um að svindlað hafi verið á prófunum. Ég hef stundum velt fyrir mér: Hvað ef þetta væri aðili með skipstjórnarréttindi, þá í samlíkingunni við bílpróf, sem hefði verið að bæta við sig réttindum til að sigla með farþega? Það er alveg sérkapítuli hvað varðar skipstjórnarréttindi og eins hvað varðar stjórnun á ökutæki, hið svokallaða farþegaleyfi. Ef það lægi fyrir að aðili hefði svindlað á því prófi og væri að sigla Baldri, svo vitnað sé til umræðu hér fyrr í dag, sem varla er til þess búinn að vera á úthafssiglingum milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja, og það kæmi í ljós að viðkomandi aðili hafi svindlað á prófinu á sínum tíma, ekki skilið prófið, prófinu hafi verið svarað fyrir hann með skeytasendingum í snjalltæki, í gegnum einhvers konar app, það getur verið SMS, Messenger, myndsendingar, alls konar, leiðirnar eru fjölmargar, hvernig telur frú forseti eða hæstv. ráðherra að stigið hefði verið inn í það ferli? Telur hæstv. ráðherra að viðkomandi skipstjóri væri búinn að sigla mánuðum saman og það væri full vitneskja þjóðarinnar að hann hefði svindlað á prófinu og hann fengi bara að sigla áfram? Nei, frú forseti. Hér er þessi þreytandi hlutur í okkar kerfi sem ég var að vitna til áðan. Það er þetta getuleysi hins opinbera til að bregðast við þegar eitthvað hefur augljóslega farið úrskeiðis. Þó er það skylda hins opinbera að tryggja eftir bestu getu öryggi borgaranna. Ég held að skipinu hefði verið snúið við á sömu mínútu eða í það minnsta stýrimaðurinn látinn taka við ef það hefði uppgötvast að sá sem sigldi skipinu væri í raun ekki með réttindi, hefði í raun aldrei tekið prófið, prófið hefði verið tekið fyrir hann í gegnum snjalltæki. Ég er meira að segja viss um að grjótharðir stuðningsmenn þeirra ólaga sem hér síðast voru samþykkt eru sammála mér í þessu. Ef þetta ætti við um eitthvað annað en leigubílstjóra væri löngu búið að grípa inn í og stöðva þetta mál. Þegar verið er að leggja mat á hvort öryggi sé tryggt þá verður að horfa á, frú forseti, að allir hópar geti verið jafn öruggir með sig þegar þeir kaupa slíka ferliþjónustu, hvort sem þeir eru að fara í skip eða stíga upp í leigubíl við Leifsstöð eða í miðbæ Reykjavíkur og að þeim mæti virðing frá þeim sem veitir þjónustuna. Þetta er krafan.

Þetta frumvarp hér, þetta litla skref hér, er í sjálfu sér alveg ágætt og það ber ekkert að þvælast fyrir því að mínu mati en það tekur ekki nándar nærri utan um það verkefni sem íslenskt samfélag er að eiga við. Þess vegna var það hryggilegt, frú forseti, hér áðan að hlusta á samskipti hv. þm. Ingibjargar Davíðsdóttur við hæstv. ráðherra, að það skuli vera í fjarlægri framtíð frekari inngrip til að tryggja öryggi þeirra sem nýta sér leigubílaþjónustu á íslenskum markaði.