157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér mál sem lengi hefur verið rætt og reynt að koma með tilraunir til þess að bæta starfsskilyrði og starfsumhverfi annars vegar út frá sjónarmiðum þeirra sem starfa í þessari grein og hins vegar þeirra sem nýta sér þjónustuna. Við getum sagt að reynslan af því lagafrumvarpi sem hér var á sínum tíma afgreitt og samþykkt sé að mörgu leyti ekki góð og það þarf að bæta úr í þeim efnum. En hvað er það sem fór úrskeiðis í lagasetningunni? Hvað hefur orsakað það að ástandið er eins og það er og það mikla vantraust sem hefur skapast hjá neytendum varðandi þessa þjónustu? Það er mikilvægt að velta því fyrir sér.

Eitt sem er hægt að nefna í þeim efnum, sem ég held að væri vert að skoða, er til að mynda tungumálakunnátta. Eftir því sem ég best veit þá gerðu Danir það að skilyrði að menn gætu skilið og tjáð sig á dönsku og það er eitt af þeim löndum sem fór í gegnum þessar breytingar og kerfið hefur gengið vel upp. Það er almenn sátt um þetta þar. Ég held að í því felist í sjálfu sér ekkert óeðlileg skilyrði í slíku þjónustustarfi þar sem samskiptin eru eingöngu við einn aðila og auðvitað nauðsynlegt að þeir kunni skil á ensku eða einhverju erlendu tungumáli, enskan er þar víðtækust. Síðan er auðvitað fjöldi Íslendinga sem notar þessa þjónustu sem er kannski líka af þeim samfélagsþegnum í aldri og slíku að að þeir eru ekkert sleipir í að beita fyrir sig erlendum tungumálum. Þetta þarf því auðvitað að hugsa og ég held að það sé ekkert óeðlilegt að setja einhvers konar skilyrði um þennan þátt málsins.

Lögin sem voru sett eru hér í upphrópunum kölluð ólög. Ég held að það standist enga skoðun. Þetta frumvarp um stöðvaskyldu getur reyndar verið ágætt en nær alls ekki nógu langt, en ólögin eru rangnefni vegna þess að ég hef í fáum lagabálkum séð eins mikla möguleika fyrir ráðherra, sem nú er horfinn úr salnum einhverra hluta vegna. Ég kalla eftir því, virðulegur forseti, að ráðherra sé hér í salnum við þessa umræðu. Það er mikilvægt vegna þess að við höfum á hann spurningar. Það er framkvæmd laganna sem hægt er að vera án nokkurrar óeðlilegrar gagnrýni algerlega sammála um að hafi farið forgörðum. Reglugerðarheimildirnar í þessum lögum eru svo víðtækar að þær taka nánast til allra greina frumvarpsins. Ég hef bara varla séð lög þar sem ráðherra er gefin eins mikil heimild til inngrips og í þessum lagabálki. Það er auðvitað ástæða til að spyrja hæstv. ráðherra, sem gagnrýndi þetta nú á sínum tíma, hvað hann hafi gert með þessar heimildir allar á þeim níu mánuðum sem hann er búinn að vera í embætti. Ég veit ekki til þess að hann hafi gert neitt í þessum málum. Þetta hefur með útfærslu á 1. gr. frumvarpsins að gera. Þetta hefur með 2. mgr. 6. gr. að gera og það er eiginlega bara of langt að telja þetta upp. Þetta hefur nánast með alla útfærslu að gera, hvort sem það er í leyfisbréfunum, rekstrinum eða skilyrðunum sem eru lögð til grundvallar til að öðlast þessi réttindi o.s.frv. o.s.frv. Ég held að það væri því bragarbót á því að ráðherrann gripi til einhverra í þessari miklu verkstjórn — hann er bara mættur. Hæstvirtur ráðherra, vertu velkominn. Ég var að koma inn á það og ég endurtek þetta, virðulegur forseti, að það sem fyrst og fremst hefur farið hér úrskeiðis og vissulega má bæta — og ég tek undir þetta með tungumálaþáttinn og fleira, stöðvaskylduna þess vegna, en það er fyrst og fremst framkvæmdin sem hefur farið út af sporinu.

Ég var að koma inn á það, virðulegur forseti, sem skilaboð til hæstv. ráðherra að hann er búinn að vera núna í ráðuneytinu í níu mánuði. Hann gagnrýndi þetta frumvarp mikið og ég hef ekki séð, eins og ég kom inn á áðan, frumvarp sem er eins hlaðið valdbeitingu ráðherra um útfærslu nánast í hverri einustu grein frumvarpsins með reglugerðarheimildum. Það er fátítt að ráðherra sé gefið svo mikið vald sem birtist í þessum lagabálki en ráðherra hefur ekkert gert í þessu. Hann starfar alveg í anda verkstjórnarinnar í þeim efnum að tala mikið en gera ekki mikið. Ég held að núna, strax í þessari viku, ætti ráðherra að grípa til þeirra ráðstafana sem hægt er að grípa til varðandi svo mörg atriði, m.a. sem koma að skilyrðum á veitingu, hverjir eiga að fá þessi leyfi, og ráðherrann þarf ekkert að vera að velta því fyrir sér og leita til einhverrar lagastofnunar um það. Ég hef sjálfur verið í ráðherrastól og þetta er nú bara svona, hvað getur maður sagt „kommon sens“ löggjöf að því leyti til, það eru engin stórkostleg lagaleg álitamál, hefði ég haldið, sem væri hægt að búa til úr slíkum reglugerðarbeitingum.

Framkvæmdin er sem sagt í aðalatriðum brotalöm málsins. Þá veltum við fyrir okkur í fyrsta lagi þessu sem ég kom inn á, að ráðherra grípi til þess að rýna í þetta eða láta einhvern gera það fyrir sig og herða rammana þar sem hann hefur öll tækin og öll tólin til þess. En hvaða kröfur ætlum við að gera? Þar komum við inn á tungumál og við komum inn á stöðvaskylduna og annað sem verður tekið til umræðu í nefndinni. Það mun taka einhvern tíma en ráðherra getur strax hafist handa. Hitt er svo annað mál og það er hluti af brotalöminni í framkvæmd að ef ég skil málið rétt þá voru aðilar sem komu í gegnum Vinnumálastofnun og var greidd leið í gegnum námið þar sem vissulega öll gögn voru á íslensku og prófin á íslensku, viðkomandi talaði ekki orð í íslensku, skildi í einhverjum tilfellum jafnvel lítið í ensku, en kom út með 9 í prófunum. Það blasir við og hefur komið fram í fjölmiðlum og menn hafa staðfest það, og það er fullyrt að það sé staðfest, að það hafi verið stórtækt svindl í gangi. Það er kannski alvarlegasta brotalömin í þessu öllu saman, að það er fullt af fólki þarna úti sem hefur fengið þessi réttindi á fölskum forsendum. Ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, hvort slíkt sé ekki lögreglumál þegar svo augljósar upplýsingar hafa komið fram um það að hér hafi verið svindlað. Það er þekkt að menn eru sviptir réttindum sínum ef það kemst upp um síðir að þeir hafi verið að svindla til að ná sér í réttindi.

Ég spyr hæstv. ráðherra hvað hann hafi gert í þessum efnum. Ég spyr hann að því hvað hann hafi skrifað margar reglugerðir síðan hann kom í ráðuneytið. Ég veit ekki um neina. Og ég spyr hann: Hvað hefur hann gert í þeim efnum að bregðast við þessum alvarlegu ásökunum um að það sé fullt af fólki þarna úti sem stundar þessa atvinnu sem hefur fengið tilskilin leyfi á fölskum forsendum? Er ekki ástæða til þess að þetta sé rannsakað? Er ekki ástæða til þess að innkalla þau leyfi og skylda þetta fólk til þess að fara í endurtekningu á prófinu? Mögulega gæti hæstv. ráðherra nýtt eitthvað af þessum reglugerðarheimildum til að búa til slíkt ákvæði sem hefði skamman gildistíma og tæki gildi mjög fljótlega um það að menn skyldu taka prófin aftur. Það er hægt að rökstyðja það að mínu mati fyllilega en rannsókn á slíkum brotum hlýtur líka að vera eðlilegur þáttur.

Niðurstaðan er sem sagt sú, virðulegur forseti, þegar málið er skoðað, að þingmenn Miðflokksins, sem eru að reyna að gera sig breiða í þessari umræðu gagnvart stétt leigubílstjóra um að hér séu ólög og ráðherrann sjálfur hefur kallað þetta ólög, kemur hér með samt einhverjar algerlega lágmarksbreytingar inn, að það er ekki hægt að tala um þetta sem einhver ólög. Það er framkvæmdin nr. 1 sem brást. Ég er ekki með athugasemdir við það að við endurskoðum lögin í ljósi reynslunnar og herðum skilyrðin. Ég ítreka það að ég held að tungumáladæmið sem er góð reynsla af til að mynda í Danmörku, eftir því sem ég best þekki, að það sé gott að það verði beitt slíkum skilyrðum. Þjónustan var orðin bágborin í þessum geira, sérstaklega eftir Covid. Það voru margir sem heltust úr lestinni eftir Covid í stéttinni og við þurftum að gera breytingar líka út frá því umhverfi sem við störfum eftir á alþjóðavettvangi. Norðurlöndin voru búin að stíga þau skref og við höfðum úr mörgu að moða þegar það kom að reynslu þeirra. Við fylgdum því ekki að öllu leyti. Ég held að þetta megi skoða. En fyrst og fremst var það framkvæmdin sem brást. Stjórnsýslan brást, þeir sem stóðu að prófunum brugðust, Vinnumálastofnun og Samgöngustofa virðast hafa brugðist þegar kemur að því að gera undanþágur frá einhverjum skilyrðum fyrir þau sem þar komu í gegn, ef ég þekki málið rétt. Þetta er það alvarlega sem við stöndum frammi fyrir. Mjög margt af þessu getur ráðherra breytt strax og á auðvitað að gera það og átti að vera löngu búinn að því, sérstaklega í ljósi gagnrýninnar sem hann hefur haft uppi um þennan lagabálk.