leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Varðandi það sem kemur fram í ræðu hv. þingmanns um próftökusvindlið, þá er ég algerlega sammála því að það er mjög mikilvægt að taka á því máli og ég veit ekki enn þá um próf sem er leyfilegt að svindla á. Samgöngustofa hefur farið í eftirlitsferðir til þeirra sem halda þessi próf í kjölfar umtals um svindl og námskeiðshaldarar hafa í framhaldinu aukið eftirlit með prófsvindli og viti menn, símar eru nú bannaðir við próftöku. Ég veit ekki hvort þeir voru leyfðir áður en þeir eru a.m.k. algerlega bannaðir núna. Það sem fór úrskeiðis er að það voru allt of miklar breytingar gerðar á þessu starfsumhverfi. Það var afnám fjöldatakmarkana þannig að um verulega fjölgun á bifreiðastjórum var að ræða. Einnig að þeir geti starfað án tengingar við stöðvar, samband bílstjóra við stöð er allt annað en samband við stjórnvald, allt öðruvísi samband. Það er það sem við erum að koma á núna, að það verði eftirlit með stöðinni, óformlegt samband að sjálfsögðu, formlegt og óformlegt samband og líka að þau haldi utan um rafrænu skrána.
Varðandi það að framkvæmdin brást því lögin voru ekki nægilega vel ígrunduð, ég meina að við höfum ekki beitt reglugerðarheimildum, þá verð ég bara að segja það að ég hef aldrei séð lög með jafn mörgum reglugerðarheimildum. Mér finnst þetta með algerum ólíkindum. Svo skoðaði ég reglugerðina sem var sett í kjölfar gildandi laga og hún er hvorki fugl né fiskur. Það eru 12 eða 13 reglugerðarheimildir, það er í 5. gr., 6. gr., 7. gr., 8. gr., 9. gr., 11. gr., 12. gr. og svo áfram, allt sérstakar reglugerðarheimildir. Við höfum núna frá því í sumar, og ég óskaði sérstaklega eftir því, ég sit á þessum fundum og hef sagt að farið verði ofan í hverja einustu reglugerðarheimild og hún verði nýtt til hins ýtrasta svo að við tryggjum það að við beitum reglugerðarvaldinu, því framsalsvaldi sem við höfum þar, svo það liggi algerlega fyrir. Ég vil bara ítreka það að það sem er verið að gera í þessum frumvarpi um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur er ekki hægt að gera með reglugerðarbreytingu. Frumvarpið með nýju lögunum varð einfaldlega miklu stærra en Samgöngustofa réði við. Hún gat ekki fylgst með hverri einustu ferð bílstjóra o.s.frv. og hafði ekki einu sinni til fjármagn til þess.
En ég vonast til þess, og kannski hv. þingmaður geti tekið undir með mér, að við erum öll í sama liðinu. Við verðum að taka á þessum málum. Ég mun gera mína heimavinnu varðandi reglugerðina og ég vonast til þess að þingheimur allur, Alþingi, muni gera sína heimavinnu við meðferð málsins í nefnd, hinni þinglegu meðferð.