157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:40]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á áðan er stöðvaskyldan bara ágætt mál. Ég óska eftir því að nefndin skoði alveg sérstaklega þennan tungumálaþátt og horfi þar til reynslu til að mynda Dana. En hæstv. ráðherra í hinni miklu verkstjórn valkyrjanna segir okkur hér að hann hafi í sumar — í sumar, hann tók við ef ég man rétt í desember, hugsið ykkur, þannig að hálfu ári seinna segir hann: Nú ætlum við að fara í allar þessar reglugerðarheimildir og við ætlum að skoða þær alveg í kjölinn og við ætlum að fara að nýta þær algjörlega í botn. Ég kvíði þessu kjörtímabili, virðulegur forseti, ef þetta er vinnulag verkstjórnar. Ég náði 18 mánuðum í dómsmálaráðuneytinu. Á níu mánuðum var ég búinn að láta klára frumvörp eins og um sameiningu sýslumannsembættanna, sameiningu héraðsdómstólanna og margt fleira er hægt að telja upp, stórkostlega viðamiklir lagabálkar, en hann setur þetta í gang núna.

Ég ætla bara að beina því til hæstv. ráðherra, virðulegur forseti, að nýta sér það að éta fílinn jafnvel í aðeins fleiri bitum. Það getur staðið í manni þegar of stórir bitar eru teknir í einu og þess vegna má bara grípa strax til ákveðinna ráðstafana, augljósra ráðstafana sem reglugerðarheimildirnar kveða á um því eins og ráðherrann kom inn á og ég kom inn á í minni ræðu hef ég aldrei séð aðrar eins valdheimildir í lögum, í neinu frumvarpi eins og í þessu frumvarpi þar sem ráðherra getur beitt valdi sínu til þess að gera breytingar.