157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[12:43]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Talandi um verkstjórn, já, þetta er svo sannarlega verkstjórn. Vandamálið er þetta, reglugerðarbreyting mun ekki laga vandamál sem er í lögunum. Það er grundvallaratriði í þessu. Reglugerðarheimild er bara framsal á valdi til að setja reglu með stjórnvaldsfyrirmælum og að það skuli drita sér á öll þessi ákvæði þarna — það er takmarkað hversu langt við getum farið í hverri einustu reglugerðarheimild. Við getum ekki farið langt út fyrir lögin. Við getum ekki tekið upp stöðvarskyldu t.d., það þarf lagafrumvarp um það. Þess vegna erum við með frumvarp núna. Við getum ekki látið stöðina hafa umsjón með rafræna eftirlitinu. Það þarf lagabreytingu til þess. Við þurfum líka að auka svigrúm fyrir neytendur til að koma kvörtunum sínum áfram, auka neytendavernd. Það þarf lagabreytingu til þess og það er það sem við erum að gera hér.

Við getum líka talað um leyfissviptingar og annað slíkt. Það er líka atriði sem við þurfum að skoða nánar og ég hef sérstaklega óskað eftir að verði skoðað nánar. Ég er algerlega sammála því að það sé mikilvægt að þetta sé á íslensku og ég tel mig hafa reglugerðarheimild núna, ég vildi hafa það algerlega á hreinu, að við getum sett það á að námskeiðin verði á íslensku og prófin verði líka á íslensku, eins og annars staðar í heiminum. Það sem ég er ótrúlega þreyttur á er þetta endalausa tal um að það eigi að vera eitthvað öðruvísi á Íslandi en annars staðar í kringum okkur, í nágrannalöndum okkar. Hv. þingmaður kom inn á Norðurlöndin. Ég kom frá Helsinki í gær og var líka þar í vor og þá ræddi ég sérstaklega þetta mál þar. Þar er verið að vinna að ítarlegu frumvarpi til að taka á þessum málaflokki í Finnlandi vegna ofbeldisglæpa og ófremdarástands á leigubílamarkaði þar, vandamál líka í Noregi. Ég þekki nú ekki ástandið í Danmörku nægjanlega vel en þetta er ástand sem er í öðrum ríkjum, hvort sem það er EES-ríki og/eða innan Evrópusambandsins.

Ég verð bara að segja eins og er að það að síðasta ríkisstjórn skyldi hafa rokið til (Forseti hringir.) með frumvarp vegna ESA — ég hef sagt það við ESA líka að þeir eigi ekki að vera í pólitík á Íslandi. Þetta er íslenskur leigubílamarkaður. (Forseti hringir.) Það á að virða það. Við eigum að setja okkur reglur á grundvelli nálægðarreglu o.s.frv. Við eigum að hafa okkar eigin reglur og það eru takmörk fyrir því hvað ESA á að stjórna þessu máli hvað þessu lýtur. (Forseti hringir.) Það er hægt að stofna leigubifreiðastöð hérna á Íslandi, erlendur aðili gæti komið hingað og stofnað leigubifreiðastöð, svo það liggi algerlega fyrir. En við verðum bara að standa í lappirnar gagnvart þeirri stofnun og halda líka áfram, við erum öll í sama liðinu þegar að því kemur.

(Forseti (BHar): Ég ætla að minna hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að virða ræðutímann.)