leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Það var haldin ráðstefna á sínum tíma þar sem farið var vel yfir reynslu Norðmanna á vettvangi Landssambands leigubifreiðastöðva. Þar komu fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum og Finnland var eitt af þeim löndum þar sem þetta gekk mjög illa upp. Það er ágætt að hæstv. forseti er farinn að segja Evrópusambandinu fyrir verkum og segja að það eigi ekki að vera í pólitík. Ég held að hann ætti að líta sér nær í þeirri ríkisstjórn sem hann styður og vinnur í, hvort Evrópusambandið er ekki komið í bullandi pólitík á mjög breiðum vettvangi og náttúrlega stórkostlegt að fylgjast með Ragnars Reykás tilburðunum hjá ráðherra Flokks fólksins þegar kemur að fjölmörgum málum í þeim efnum.
Reglugerðarheimildirnar fjalla m.a. um, svo ég grípi aðeins niður í það, með leyfi forseta:
„Hefur viðeigandi starfshæfni eins og nánar skal kveðið á um í reglugerð.“ „Ráðherra er heimilt í reglugerð að kveða á um að tiltekin brot eða tilteknir brotaflokkar skuli ekki hafa áhrif á mat á góðu orðspori.“
Gott orðspor er tekið mjög upp í þessu og hvernig væri hægt að meta það hjá öllum þessum aðilum.
„Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um framkvæmd leyfisveitinga samkvæmt ákvæði þessu, þ.m.t. um umsóknir um leyfi og þau gögn og vottorð sem fylgja skulu umsóknum eða Samgöngustofu er heimilt að afla vegna þeirra.“
Svona get ég talið upp öll þau verkfæri, yfirfulla verkfærakistu, vil bara segja heilan verkfæraskáp, heilt stórt verkstæði sem ráðherrann hefur til þess að beita og hér er aðalmálflutningur hans að gagnrýna frumvarpið og lögin sem voru sett. Út á það gengur gagnrýnin, að þetta hafi verið öllum öðrum að kenna en honum sjálfum en hann er búinn að hafa öll tækifæri núna í níu mánuði til að klára og setja sitt mark á þetta. Alveg eðlilegt, virðulegur ráðherra, að menn taki lagabálk til skoðunar í ljósi reynslu, eins og þessi lög, og heildstæðrar skoðunar. En ég held að þetta húmbúkk sem þetta frumvarp ráðherrans er breyti ekki stóru myndinni. Ég held að breytingarnar geti orðið miklu meiri í því að grípa til viðurlaga við því svindli sem mörgum (Forseti hringir.) finnst vera sannað að hafi átt sér stað, menn verði látnir sæta því, menn verði kallaðir inn í próf aftur og sjá hvort þeir standist það með sómasamlegum hætti eða fái 9 eins og áður (Forseti hringir.) byggt á þeim skilyrðum sem fyrir liggja um þessi próf.
(Forseti (BHar): Forseti ítrekar tilmæli sín til hv. þingmanna um að virða ræðutímann.)