leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Mér finnst ég knúinn til að leggja orð í belg varðandi þetta frumvarp sem kom áður fram á síðasta þingi en dó því miður drottni sínum í sumar. Ég ætla í upphafi að nefna að á kjörtímabilinu 2017–2021 lagði þáverandi ríkisstjórn ítrekað fram leigubílafrumvarp sem varð svo á endanum að lögum á kjörtímabilinu þar á eftir. Við Miðflokksmenn á þeim tíma, fyrir sex, sjö árum síðan, töluðum harkalega gegn þeim breytingum. Síðan á næsta kjörtímabili náðust þessar breytingar í gegn hjá þáverandi ríkisstjórn gegn auðvitað harkalegri andstöðu Miðflokksins sem var nú reyndar minni þá heldur en áður. Á þessum tíma átti ég marga fundi með leigubílstjórum í Reykjavík, Keflavík, á Akureyri, víða um land, fjöldamarga fundi um þessa löggjöf sem var í bígerð, hlustaði á þeirra sjónarmið og kom þeim á framfæri hér í ræðustól Alþingis og í greinaskrifum þar sem við vöruðum við þessari löggjöf. Illu heilli var ekki á okkur hlustað og það sem meira var, ríkisstjórnin leit í bæði skiptin ekki til þeirra vandamála sem þegar voru komin í ljós á hinum Norðurlöndunum og við bentum ítrekað á, t.d. þetta með tungumálið. Við bentum t.d. á þetta skilyrði um tungumálakunnáttu, að leigubílstjórar væru í færum að tala tungumálið, sem er í Danmörku. Þetta var ekki tekið upp og hefur ekki verið tekið upp.
Nú heyrum við í hæstv. ráðherra, hann segist ætla að taka þetta upp núna og reyna að bæta eitthvað úr. Auðvitað er þetta allt of seint í rassinn gripið, frú forseti. Nú er búið að rústa leigubílamarkaðnum með þessum lögum og nú á að fara að reyna að lagfæra þetta eftir á, sem er auðvitað erfitt. En miðað við það sem ég hef hlustað á af ræðum hv. þingmanna og hæstv. ráðherra þá er mikill vilji til þess og ég vil bara taka undir orð hv. þm. Jóns Gunnarssonar, auðvitað verður ráðherra að fara í verkið. Þeir hrósa sér af að vera verkstjórn og þarna er verk að vinna, hæstv. ráðherra, laga þá agnúa sem unnt er að laga og koma með þær lagabreytingar sem þarf til að rétta þetta mál af. Eina orðið yfir leigubílamarkaðinn í dag er ófremdarástand, frú forseti. Það er búið að tala um þetta alveg frá því lögin voru sett og af hverju gerist ekki neitt? Ég hvet hæstv. ráðherra til að ganga í þetta verk af alefli og fljótt og hafa hraðar hendur.
Hæstv. ráðherra kom að því í andsvari að nú væru símar bannaðir í prófum. Þetta er auðvitað bara hlægilegt, frú forseti. Voru þeir leyfðir? Spyr ég nú bara. Hvers lags framkvæmd er þetta, frú forseti? Eru menn gjörsamlega blindir? Það þarf að taka próf til að geta stundað leigubifreiðaakstur og þér er leyfilegt að hafa síma þar sem sá sem er á hinum endanum sendir þér svörin við þeim spurningum sem þú átt að svara og þú skilur kannski ekki neitt í spurningunni eða tungumálinu og jafnvel ekki ensku. Ég krefst þess, frú forseti, að hæstv. ráðherra nýti sínar valdheimildir og afturkalli þessi próf og fari fram á að þessir próftakar þreyti próf að nýju. Þetta er algerlega óboðlegt, frú forseti.
Þrátt fyrir að við höfum varað við þessu þá fóru menn þennan veg, gengu þennan veg með opin augu, vitandi það að hér gæti skapast það ófremdarástand sem menn voru að horfa upp á, sérstaklega í Finnlandi þar sem ríkir óöld á þessum markaði og við erum að horfa upp á það hér líka. Miðað við þær fréttir og frásagnir sem maður hefur lesið þá ríkir óöld á leigubílamarkaði og ráðherra ber skylda til að ganga í þetta mál. Ef hann hefur heimildir eins og hv. þm. Jón Gunnarsson margnefndi þá á hann að nýta þær, ekki eftir hálft ár eða eitt ár heldur strax.
Miðflokkurinn mun ekki standa í vegi fyrir því að þetta frumvarp verði að lögum eins fljótt og hægt er. Við teljum þetta frumvarp vera gott eins langt og það nær. Við teljum að það þurfi að gjörbreyta framkvæmd og eftirliti í þessum málaflokki og ég krefst þess einnig, frú forseti, að ráðherra beiti sínum valdheimildum yfir Samgöngustofu, sem er eftirlitsaðilinn, til að láta hana sinna sínu starfi. Hún hefur með höndum eftirlit með þessum markaði. Hún hefur með höndum eftirlit og útgáfu atvinnuleyfa, prófa- og námskeiðshald og eftirlit almennt með leigubifreiðaakstri og ráðherra á auðvitað að beita sínum valdheimildum og tala tæpitungulaust við sína undirstofnun um að menn gangi í það. Þetta er mikill mannfjöldi sem starfar hjá Samgöngustofu. Þau hljóta að geta sett mannskap í að efla þetta eftirlit sem þeim ber skylda til að rækja en hafa ekki gert nægilega vel miðað við þær fréttir sem maður les.
Það er ærið verk að vinna, frú forseti, hvað varðar framkvæmdina, eftirlitið, lagasetningar, reglugerðarsetningar og auðvitað var það fyrri ríkisstjórn sem setti þetta af stað, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Auðvitað voru það þeir sem fóru þarna með bundið fyrir augun þrátt fyrir viðvaranir Miðflokksins og fleiri aðila, leigubílstjóra, ár eftir ár um hvernig þetta gæti farið og þannig var það látið fara. Miðflokkurinn stóð alltaf gegn þessu frumvarpi og taldi að það þyrfti að stórlaga það til þess að óhætt væri að ganga í einhverjar breytingar á þessum markaði.
T.d., frú forseti, gæti nefndin sem þetta fer til, allsherjar- og menntamálanefnd geri ég ráð fyrir, á einfaldan hátt lagað þetta frumvarp. Ég vil leyfa mér að benda á nokkur atriði, að setja inn í lögin t.d. að það væri krafa um íslenskukunnáttu, að leigubifreiðastjórar geti gert sig skiljanlega á íslensku, henda því einfaldlega inn í lögin fyrst ráðherra er ekki að setja það í reglugerð. Getum við ekki gert kröfu um það, þessi litla þjóð hérna úti í Atlantshafi, að leigubílstjórar, sem eru nú bara taldir í einhverjum hundruðum, geti talað við farþega á íslensku? Er ekki hægt að gera kröfu um það? Hvers lags feimni er þetta? Af hverju eru menn svona litlir í sér? Auðvitað eigum við að gera þessa kröfu. Danir gera þetta. Þú færð ekki vinnu í Svíþjóð í venjulegum verslunum nema þú kunnir sænsku og getir gert þig skiljanlegan. Af hverju erum við svona litlir í okkur? Við þurfum ekki að vera feimin við þetta. Við eigum bara að gera kröfu um þetta.
Önnur breyting sem ég myndi vilja sjá er að nefndin gæti lagt til breytingu á 5. gr. núverandi laga um leigubifreiðaakstur þar sem segir að leyfisbréfin gildi í fimm ár. Þarna er unnt að skjóta inn mjög einfaldri breytingu um að ný leyfisbréf gildi í eitt ár til reynslu, mjög auðveld og einföld breyting t.d. Ég er búinn að benda hérna á tvær æskilegar breytingar á þessu frumvarpi til að reyna að laga þetta. Eftirlit með þessum leigubifreiðaakstri er í molum miðað við frásagnir. Ráðherra þarf, eins og ég hvatti hann til að gera, að hafa skilvirkt eftirlit með sinni undirstofnun til að hún sinni sínu hlutverki. Viðbragðið þarf að vera skjótvirkt. Ráðherra þarf strax að ganga í þetta og eftirlitsaðilinn þarf að gera það án tafar. Ef um er að ræða einhver lögbrot þarf auðvitað að koma því í hendurnar á viðeigandi aðilum til að rannsaka málin og taka þau til viðeigandi meðferðar.
Ég velti líka fyrir mér sviptingu leyfis, af hverju þessir aðilar sem ganga fram með þessum hætti sem maður verður var við eru ekki sviptir leyfi. Ef það vantar einhverjar heimildir í lögin eða í reglugerðirnar þá hvet ég hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að setja inn skýrt ákvæði í lögin um að afturköllun leyfis sé einfölduð og gerð skilvirkari þannig að það sé hægt að hreinsa til, frú forseti, á þessum markaði.
Hver eru markmið laganna, frú forseti? Markmið laganna er að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur. Ég hnýt um þetta orð, öruggri. Það er auðvitað ekki boðlegt, frú forseti, ef menn og konur, kannski konur sérstaklega, þurfa að óttast um öryggi sitt þegar stigið er inn í leigubifreið. Það er auðvitað ekki boðlegt. Ef við verðum vör við að þetta eigi sér stað svo sannanlegt sé þá á ráðherra ekki að bíða eftir neinum starfshópum eða nefndum heldur á hann að stíga strax inn í með öruggum hætti og gefa fyrirmæli til sinnar undirstofnunar um að taka á þessu sem allra fyrst. Einnig þessar umræður um að það sé svindlað á farþegum. Auðvitað á að stíga þarna inn í með afgerandi hætti, frú forseti. Þetta á auðvitað ekki að eiga sér stað. Við erum að ræða hér málefni sem varðar mikilvæga almannahagsmuni, frú forseti. Við eigum ekki að gefa neinn afslátt þegar kemur að slíkum hagsmunum og ég hvet enn og aftur hæstv. ráðherra til að stíga inn í þetta hratt og örugglega og ekki bíða neitt með það. Við þurfum að tryggja öryggi farþega. Við þurfum að tryggja gagnsæja verðlagningu hvað varðar gjaldtöku leigubifreiða.
Hv. þm. Jón Gunnarsson taldi það ekki standast að kalla þetta ólög eins og sumir hafa gert, það væri rangnefni. Ég skal ekki segja um það en það er alla vega ófremdarástand og það þarf að stíga þarna inn í. Hv. þm. Jón Gunnarsson orðaði það þannig að þingmenn Miðflokksins væru að gera sig breiða í þessu máli. Það er bara ekki rétt, frú forseti. Þingmenn Miðflokksins hafa síðustu átta árin talað gegn þessum breytingum og það er alveg sama hvað þið hlæið mikið að því, það er bara sannleikur, það er hægt að fletta því upp. Við höfum bent á að þetta gæti valdið öryggisleysi á þessum markaði sem svo sannarlega hefur orðið í tíð þeirrar ríkisstjórnar sem fór frá fyrir einu ári síðan. Nú er komin ný ríkisstjórn og ég vona að hún gangi hratt í þetta. Það eru liðnir níu mánuðir, alveg rétt hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Það er of langur tími. Það ætti að vera búið að taka á þessu strax.
(Forseti (EÁs): Forseti vill upplýsa hv. þingmann um það að málið mun ganga til umhverfis- og samgöngunefndar þegar þessari umræðu lýkur.)