157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:04]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að ástandið er óásættanlegt, þjóðin er óánægð. Orsökin er mjög skýr. Það eru lögin sem tóku gildi í apríl 2023 undir þáverandi meiri hluta, lögin sem afnema ábyrgð og eftirlit með einu pennastriki. Það er auðvelt að benda á reglugerðarheimildir sem verkfærakistu en það breytir því ekki að þá verður meiri fjarlægð við stöðvaskylduna.

Varðandi það að það sé hægt að laga þetta allt með reglugerðarheimild, þá er það bara ekki rétt. Það er bara ekki rétt. Tökum bara dæmi um gott orðspor. Það er tvisvar sinnum fjallað um gott orðspor í lögunum, í 5. og 6. gr. Gott orðspor er bundið í lögunum við sakfellingu. Það er ekki hægt að breyta því með reglugerð. Þetta er bæði í 5. og 6. gr. Svo getum við tekið dæmi varðandi starfsleyfi allra stöðvanna. Það er takmarkað hvað hægt er að gera þar, það er stór hluti sem er ekki með stöðvaskyldu, það eru 100 bílstjórar sem eru ekki með stöðvaskyldu og það er ekki er hægt að breyta því með reglugerðarheimild. Skyldur rekstrarleyfishafa. Það er ekkert komið með nýjar skyldur. Það er bara hægt að kveða nánar á um þær skyldur sem kveðið er á um í lögunum. Ég get ekki dúndrað niður skyldum með reglugerð þar. Sama með gjaldmælana, sama með gæða- og tæknikröfur. Ég get bara kveðið nánar á um þær skyldur sem kveðið er á um í lögunum. Ég er ekki að fara að breyta kerfinu. Auðkenni, jú, ég get komið þar með heimild sem segir: Nú verða allar númeraplöturnar að vera litaðar. Það er hægt. Það er því mjög takmarkað hvað hægt er að gera í reglugerð. Að tönnlast á því að reglugerð eigi að breyta grundvallaratriðum í löggjöf frá Alþingi Íslendinga — það er bara ekki þannig, svo það liggi algjörlega fyrir. Það sem við þurfum að gera hér er að breyta lögunum. Til þess er þetta frumvarp lagt fram. Það er fyrsti áfanginn núna undir (Forseti hringir.) og ég hvet hv. þingmenn Miðflokksins að sýna ábyrgð í verki, styðja þetta mál heils hugar. (Forseti hringir.) Svo munum við halda þessari vinnu áfram í ráðuneytinu og koma með nýtt frumvarp næsta haust og þá verður vonandi ný reglugerð líka komin.