157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:06]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég greindi enga spurningu í andsvari hæstv. ráðherra. Ég nýti þá mitt tækifæri til að varpa fram spurningu í minni ræðu, þ.e. hvernig hæstv. ráðherra líst á það að hv. umhverfis- og samgöngunefnd, þangað sem þetta mál mun fara að sögn frú forseta, skoði í fyrsta lagi að það sé bráðabirgðaleyfi í eitt ár þegar leyfi eru gefin út. Hvernig líst honum á það að því sé bætt inn í lögin í stað þess að það sé strax gefið fimm ára leyfi? Þessi reynslutími, eitt ár, sé fyrsta skref. Það er einfalt að bæta því inn í 5. gr. í meðferð nefndarinnar. Í öðru lagi að það sé sett inn í greinina, hvort sem það er unnt að gera það í reglugerð eða ekki, að leigubílstjórar sem eru að sækja um leyfi geri sig skiljanlega á íslensku. Í þriðja lagi ábending mín eða krafa um það að hæstv. ráðherra afturkalli þau leyfi sem hafa verið gefin út og grunur leikur á um að þar hafi verið um svindl að ræða, þessi leyfi séu afturkölluð og viðkomandi settir í próf að nýju.

Hvað varðar orð hæstv. ráðherra um reglugerð eða lög þá fór ég í máli mínu ekki þá leið að fullyrða að það væri hægt að laga tiltekin atriði með reglugerð eða með lagabreytingu heldur benti ég bara almennt á það hvað þyrfti að laga. Ef það nægir að breyta reglugerð þá hvet ég hæstv. ráðherra til að gera það, ella að þessum lögum verði breytt á fullnægjandi hátt í meðförum hv. umhverfis- og samgöngunefndar.

Ég er reyndar mjög hissa á orðum hæstv. ráðherra þar sem hann hvetur okkur til að styðja þetta mál, sem við munum gera (Forseti hringir.) en það sem ég er hissa á er að það sé væntanlegt frumvarp næsta haust. Ég tel að ef það á að gera frekari breytingar þá verði það gert strax á vorþinginu.