leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Það er svo auðvelt að vega að frelsinu. Það er alltaf hin stysti og auðveldasti vegur stjórnmálamannsins að vega að frelsinu. Hér hafa vinir mínir í Miðflokknum, eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, komið upp og verið með mikinn bölmóð og heimsendaspár út af þessu frumvarpi og lögunum sem nú eru í gildi og ætla að styðja núverandi frumvarp þar sem vegið er að frelsinu. En hvað er vandamálið? Það er framkvæmdin. Eins og margoft hefur komið fram er það framkvæmdin.
Ég velti því fyrir mér hvort vinir mínir í Miðflokknum og í ríkisstjórnarflokkunum hefðu verið á móti því þegar einkasala ríkisins á sjónvörpum og símum var lögð af eða þegar einkaleyfi Sambandsins á að selja mjólk [Hlátur í þingsal.] árið 1977 var lagt af eða þegar við hættum rekstri ríkisskipa árið 1992 eða seldum Ferðaskrifstofu ríkisins sama ár eða við afnám einkaleyfis RÚV á sjónvarps- og útvarpssendingar árið 1986. Ég er alveg viss um að Flokkur fólksins hefði verið á móti öllum þessum breytingum. Flokkur fólksins hefði líka stokkið á þann vagn þegar 56% þjóðarinnar voru andvíg litasjónvarpinu. 75% þjóðarinnar voru andvíg gerð Hvalfjarðarganga. Ég velti fyrir mér lögleiðingu bjórsins árið 1989. Þar voru margir andstæðingar frelsisins á móti hér í þingsal.
Það er svo auðvelt að vega að frelsinu, vega að framförum, vega að frelsi fólks til að velja og taka ábyrgð á eigin lífi. Hér koma hv. þingmenn og tala um að þetta muni auka öryggi farþega. Mun þetta frumvarp auka öryggi farþega? Nei. Eru hv. þingmenn búnir að gleyma því hvernig ástandið var á leigubílamarkaði þegar þessi lög voru sett? Það var skortur á leigubílum, það fengust ekki leigubílar og ungt fólk, og ekki síst ungar konur, voru að fara hér um helgar með einhverjum skutlþjónustum á fésbókinni sem var engin yfirsýn yfir. Það er nefnilega þannig að þegar frelsinu eru settar miklar skorður þá finnur fólk sér farveg og ekki með góðum hætti. Af því að boð og bönn, menn hafa alltaf fundið — þrátt fyrir trú vinstri manna á að boð og bönn muni leysa allt og hv. þm. Jón Gnarr kom nú inn á það hvernig samstarfsflokkur hans, Samfylkingin, er flokkur boða og banna. Ég tek undir það með honum og það er líka Flokkur fólksins. Boð og bönn leysa ekki vandamálin. Frelsið og að treysta fólki mun leysa vandamálin. Það er ekkert í þessum lögum og ekkert í núgildandi lögum sem hefur þau áhrif á að öryggi fólks sé ógnað. Það er hins vegar framkvæmdin sem hafa verið brotalamir á.
Hvaða reglugerðarheimildir hefur hæstv. innviðaráðherra í núverandi lögum til að bregðast við stöðunni? Jú, við skulum fara aðeins yfir það. Hann getur t.d. útbúið reglugerð um hvað telst viðeigandi starfshæfni; hvaða brot hafa áhrif á hvort orðspor ökumanna telst gott eða ekki. Hann getur skilgreint framkvæmd leyfisveitinga, t.d. hvaða gögn og vottorð skuli fylgja umsóknum, nánari skyldur rekstrarleyfishafa skv. 8. gr. laganna. Hann getur haft eftirlit með gjaldmælum, hvernig verðskrá skuli vera aðgengileg viðskiptavinum. Að leigubifreið skuli gangast undir sérstaka leyfisskoðun, auðkenning leigubifreiða, hlutverk og skyldur leigubílstjóra og framkvæmd vettvangseftirlits lögreglu. Allar þessar reglugerðarheimildir eru nú þegar fyrir í lögunum og fyrir mörgum mánuðum síðan hefði hæstv. ráðherra getað brugðist við. Hann hefði getað brugðist við þeirri stöðu sem uppi er nú með því að beita þessum reglugerðarheimildum. Það er svo auðvelt að ætla að spóla til baka og þá verður staðan komin upp að ungt fólk verður á fésbókinni eða einhverjum miðlum að finna sér einhverja ólöglega leigubíla úti í bæ.
Ég segi bara við hæstv. ráðherra: Það er algerlega komið á hreint að það voru brotalamir við framkvæmd prófanna. Hæstv. ráðherra, láttu bara taka prófin aftur. Þar liggur m.a. vandinn. Ástandið á Keflavíkurflugvelli hefur ekkert með þessi lög að gera. Hvernig brást Isavia við kaffiskúramálinu? Með því að geta ekki tekið á því máli og ákváðu bara að loka skúrnum. Hafði það eitthvað með þessi lög að gera? Nei. Er ástandið á bílastæðinu fyrir utan flugvöllinn út af þessum lögum? Nei, það er af því að Isavia hefur ekki stjórn á sínu umráðasvæði. Ég velti því fyrir mér hvort það þurfi að bæta við fleiri millistjórnendum hjá Isavia til að bæta hér úr eða hvort menn þurfi almennt að gyrða sig í brók og koma skikki á stöðu mála á sínu starfssvæði.
Hér situr einn hv. þingmaður Viðreisnar og fylgist með af athygli, hv. þm. Ingvar Þóroddsson. Ég velti því fyrir mér hver afstaða Viðreisnar sé í þessu máli, samstarfsflokks hæstv. ráðherra. Hv. þm. Jón Gnarr kom upp áðan og taldi sig talsmann frelsis en ekki boða og banna eins og samstarfsflokkar hans í ríkisstjórn. Ég vil fá að lesa hér upp ummæli hv. þm. Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, sem er nú hæstv. dómsmálaráðherra, í þingsal þegar frumvarpið var lagt fram árið 2022. Þá segir hv. þingmaður, með leyfi forseta:
„Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál og greiði því atkvæði mitt. Hérna er um að ræða heilbrigt skref í frjálslyndisátt, heilbrigt skref í átt að aukinni þjónustu við almenning í landinu, frekar feimið frelsismál því að það hefði mátt stíga stærri skref. Ég ætla bara að segja hérna inni, vegna þess að það er verið að tala um það hvaða orð heyrðust ekki hérna inni, að ég saknaði þess af hálfu þeirra sem tala gegn þessu máli að þeir taki sér orðið neytendur í munn. Ég segi já.“
Virðulegur forseti. Ég spyr eftir að hafa lesið þessi ummæli sem og mörg önnur frá þingmönnum Viðreisnar þegar frumvarpið var lagt fram 2022, þar sem m.a. núverandi hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir taldi að ekki nógu langt væri gengið. Nú situr Viðreisn í ríkisstjórn sem er að fara í þveröfuga átt. Ég velti því fyrir mér: Hvað ætlar þingflokkur Viðreisnar að gera í þessu máli? Þingflokkur Viðreisnar sem er búinn að koma upp og tala fyrir því að það sé gengið enn þá lengra í frelsisátt heldur en núverandi lög eru. Hér er hv. þingmaður nýbúinn að bera sig upp sem kyndilbera frelsisins og vera á móti boði og bönnum ólíkt samstarfsflokkum sínum. Ég velti því fyrir mér hvar Viðreisn stendur í dag í þessu máli. Kannski er það þannig þegar ráðherrabekkurinn er skipaður að þá eru prinsippin fljót að fara og frelsinu fórnað fyrir boð og bönn nema hér í hátíðaræðum og ræðum sem kannski hafa minna að segja heldur en í rauninni þær gjörðir sem koma frá hæstv. ríkisstjórn.