157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:24]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talaði hér um andstæðinga frelsisins og talaði fjálglega um frelsið, að taka ábyrgð á eigin lífi og að Flokkur fólksins væri í hópi andstæðinga frelsisins. Ég vil bara minna hv. þingmann á eitt, að í síðustu ríkisstjórn voru núgildandi lög samþykkt, á síðasta kjörtímabili undir forystu flokks hans. Og hvað fjalla þessi lög um? Jú, þau fjalla um leyfisbindingu, leyfisskyldu. Þetta eru klassísk lög um leyfi, það þarf að fá leyfi til að aka leigubifreið á Íslandi, leigubíl á Íslandi. Er það frelsi? Nei, það er ekki frelsi, þú verður að taka próf, þú verður að standast prófið, þú verður að sækja um leyfið og fá leyfi frá stjórnvöldum til að stunda þessa atvinnustarfsemi. Það er ekki frelsi. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er hann á móti því að stjórnvöld gefi út leyfi til leigubifreiðaaksturs á Íslandi og skerði þannig atvinnufrelsi með þeim hætti með því að leyfisbinda þessa starfsemi, er hann á móti því?

Svo talaði hann líka um það að það hafi verið skortur á leigubifreiðum. Það var auðvitað skortur í Covid á leigubifreiðum. Fólk var ekki úti. Þessi atvinnustarfsemi gjörsamlega hrundi, það var enginn sem nýtti sér hana. Hann minntist á ungar konur og reyndar minntist hann líka í sömu andrá á að það væri engin yfirsýn. Ég get sagt þér sögur af ungum konum og ég hef heyrt þær fleiri en eina, fleiri en tvær, fleiri en þrjár og fleiri en fjórar sögur um það að ungar konur veigra sér í dag við að taka leigubíl. Þær veigra sér við að segja hvert leigubílstjórinn á að keyra, þær segja ekki frá lögheimili sínu, segja ekki hvar þær búa. Þær óska eftir að fara úr bílnum áður en þær koma heim til sín af ótta við að það verði ráðist á þær. Þetta hef ég heyrt oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Ég hef líka heyrt að það sé verið að ráðast á fólk sem býr úti á landi, að bílstjórinn keyri allt aðra leið en hann á að fara til að rukka hærra. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Er hann á móti því að leyfisskylda þessa starfsemi og þannig að ganga gegn frelsinu sem hann talaði svo fjálglega um?