157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:26]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit eiginlega ekki á hvaða vegferð hæstv. innviðaráðherra er. Auðvitað er það þannig að þú þarft að uppfylla einhver skilyrði til að keyra leigubifreið alveg eins og þú þarft að uppfylla skilyrði ef þú ætlar að fara að keyra vörubíl. Það er ekki þannig að ég geti bara sest upp í vörubíl ef ég hef ekki til þess tilskilin próf, hvað þá að fljúga flugvél. Er það einhver hefting á frelsi mínu? Nei. Þetta er mjög sérstök nálgun svo ekki sé meira sagt. Og skorturinn var löngu til kominn fyrir Covid, svo það sé sagt. Þegar hæstv. ráðherra talar um að ungar konur veigri sér við að fara í dag upp í leigubíl — hvað sagði ég í ræðu minni áðan? Það eru ekki lögin sem eru vandamálið, það var framkvæmdin. Þess vegna segi ég: Hæstv. ráðherra, láttu bara taka prófin aftur. Það mun enginn andmæla því ef þú lætur taka prófin aftur. Það hefur komið hér fram að það var svindlað á þessum prófum. Það liggja fyrir játningar um að það hafi verið svindl á prófunum, þannig að þegar sá vafi er fyrir hendi þá mun enginn hér í þingsal mótmæla því að þú látir taka þessi próf aftur og nýtir síðan þær reglugerðir hvað telst viðeigandi starfshæfni, hvort brot hafi áhrif á hvort orðspor ökumanna telst gott eða ekki og framkvæmd leyfisveitinga, t.d. hvaða gögn og vottorð skuli fylgja umsóknum.

Hæstv. ráðherra. Þú hefur þetta allt í hendi þér núna til þess að taka á þessum vandamálum til þess að komast hjá því að ungar konur veigri sér við að fara upp í leigubíl.