157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:28]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við skulum vera alveg skýr. Hér er ekki með þessu frumvarpi verið að vega að frelsi heiðarlegra og faglegra leigubifreiðastjóra til starfa. Það er ekki verið að gera það. Hér er verið að verja frelsi almennings til að geta tekið leigubíl án þess að óttast um öryggi sitt. Það er markmiðið, að reyna að tryggja öryggi farþega.

Frelsi án ábyrgðar er stjórnleysi. Það er það sem lögin frá 2023 færðu okkur. Það var algjört stjórnleysi og það er þetta stjórnleysi sem þetta frumvarp ætlar að taka á. Það er markmið þessa frumvarps að taka á þessu stjórnleysi. Hvernig ætlum við að gera það? Með því að tryggja virkt eftirlit og stöðvaskyldu. Við erum með blandað kerfi núna. Við erum með stöðvaskyldu og ekki stöðvaskyldu, við getum haft stöðvaskyldu og svo getum við ekki haft neina stöðvaskyldu. Við ætlum að hafa núna stöðvaskyldu. Af hverju? Af því að stöðin hefur annað slagið annars konar eftirlit en stjórnvaldið, ég er búinn að segja þetta margoft. Það er ástæðan fyrir þessu frumvarpi núna. Varðandi að framkvæmdinni hafi verið klúðrað, að það sé hægt að bjarga þessu öllu með reglugerðarheimild. Ég er búinn að fara yfir það nú þegar. Það er ekki það sem málið snýst um. Það er ekki hægt varðandi atvinnuleyfi að breyta málinu í grundvallaratriðum eða ákvæðinu um önnur leyfi, það er bara ekki hægt, eða skyldum rekstrarleyfishafa. Reglugerðarákvæðin geta ekki tekið á grundvallaratriðum þessa máls sem lúta að stöðvaskyldu, rafrænu eftirliti og kvörtunum neytenda. Við munum síðan halda áfram með annan hlutann, vonandi næsta vor eða næsta haust, til að taka á þessu máli.

Ég óska eftir því að þetta mál fái góða meðferð í hv. umhverfis- og samgöngunefnd og að við séum öll sammála um markmiðið sem er að tryggja að öryggi farþega verði tryggt. Ég vona að hv. þingmaður geti tekið undir það að við ætlum að tryggja öryggi farþega hvað þetta varðar og spurningin lýtur að því: Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að tryggja öryggi farþega öðruvísi en með lagabreytingu? Reglugerðarheimildirnar duga ekki til. Þær gera það ekki.