157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:30]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Talandi um stöðvaskylduna er það nú bara þannig að ESA hefur gert athugasemdir við stöðvaskylduna; réttlæting íslenska ríkisins sé ekki fullnægjandi þar sem hún staðfesti ekki að skylda sé viðeigandi eða nauðsynleg til að ná markmiðum. (Gripið fram í.) Það er algerlega á hreinu, eins og ég hef margítrekað hér, að ráðherra hefði getað gripið inn í og tekið á þessum málum fyrir níu mánuðum síðan. Þessi sýning hér sem Miðflokkurinn, vinir mínir í Miðflokknum, stökkva á — að hverfa ár aftur í tímann og skerða frelsi, þarna er munurinn. Munurinn á þeim sem treysta fólki og þeim sem vilja boð og bönn og telja að hið alsjáandi auga ríkisins muni leysa öll okkar vandamál.