157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[13:32]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Jens Garðar Helgason spurði í sinni ræðu hver afstaða Viðreisnar væri. Mér er ljúft og skylt að koma hér upp og greina frá því alla vega hver mín afstaða er. Hv. þingmaður vitnaði í ræðu hæstv. dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, sem þá var hv. þingmaður og studdi þetta mál. Hefði ég verið á þingi á þeim tíma hefði ég líka stutt þetta mál enda var ástandið, eins og hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu, algerlega óboðlegt fyrir setningu þeirra laga sem nú eru í gildi. Ég man sjálfur eftir að hafa staðið ómannúðlega lengi í röðum í miðbæ Reykjavíkur sem ungur maður sem þá var í háskóla að bíða eftir leigubíl. Í dag sjáum við hverjar afleiðingarnar hafa verið. Í dag er mun meira frelsi á markaðnum en var áður. Ástandið í dag er þó aftur orðið óboðlegt á annan hátt og við því þarf að sjálfsögðu að bregðast. Mér heyrist allir vera sammála um það.

Þetta er það sem verið er að gera núna með þessu frumvarpi, með því að setja aftur á stöðvaskyldu sem felur í sér rafrænt eftirlit. Það er ekki verið að fara alla leið til baka. Þar er ég ósammála hv. þingmanni. Við erum ekki að fara til baka til þess tíma eins og þetta var. Við getum áfram verið með Uber og önnur svoleiðis fyrirtæki, án þess að ég vilji láta þessa umræðu snúast um eitt tiltekið fyrirtæki þar sem þeirra þjónusta eða þeirra snjallforrit væri í raun eins konar stöð. Ég er því ósammála hv. þingmanni að með þessu frumvarpi séum við að fara alla leið til baka.