leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Hv. þingmaður spyr hvort ég sé sammála honum í því að það ætti að taka prófið aftur og beita þeim reglugerðarheimildum sem núgildandi lög kveða á um. Mér finnst hæstv. ráðherra hafa svarað því mjög vel hingað til í andsvörum, að þær reglugerðarheimildir sem eru til staðar duga hreinlega ekki til. Ég efast um að það eitt og sér, að láta taka prófin aftur, myndi duga. Það sem vantar í kerfið í dag er þetta rafræna eftirlit sem þetta frumvarp, sem hæstv. innviðaráðherra kemur með hérna, myndi koma á með stöðvaskyldunni. Einn bílstjóri gæti persónulega myndað sína eigin stöð. Það væri kannski kostnaðarsamt fyrir viðkomandi en það er svo sannarlega möguleiki. Svo nei, ég er ekki sammála því að það væri nóg að beita þeim reglugerðarheimildum sem ráðherrann hefur og ekki heldur sammála því að það væri nóg að bara láta taka prófið aftur.
Okkur hefur verið tíðrætt um frelsi og ég held að við hv. þingmaður séum sammála um að standa vörð um frelsið. Hv. þingmaður þekkir vel til í sjávarútveginum. Þar þarf maður að eiga kvóta til að veiða af því að það eru ákveðnir hagsmunir sem við þurfum að standa vörð um og standa vörð um sjálfbærar veiðar. Ég lít á að þetta sé sambærilegt. Hérna erum við að koma á þessu kerfi með stöðvar og rafrænt eftirlit vegna þess að öryggi farþega er líka eitthvað sem við þurfum að taka með í reikninginn.