leigubifreiðaakstur.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni Ingvari Þóroddssyni fyrir hans þátttöku í þessum umræðum. Ég fagna henni og veit hvar hjarta hans slær í þessu máli þó svo að ég sé ekki sammála líkingunni um takmarkaða auðlind sem lýtur vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ég veit ekki hvort gefin verði út vísindaleg ráðgjöf af hendi Samgöngustofu um takmarkaða auðlind bifreiða á Íslandi en hver veit. Maður er eiginlega farinn að velta fyrir sér hvað samstarfsflokki hv. þingmanns, Flokki fólksins, dettur orðið í hug. Það er svo auðvelt að stíga þessi litlu skref þar sem við ráðumst að frelsi fólks. Í gær eða fyrradag vorum við að ræða húsaleigulög þar sem aðeins smá á að ganga á frelsi fólks, þvinga það inn í einhverja miðlæga gagnagrunna, láta hið alsjáandi auga ríkisins fylgjast betur með því, þannig getum við fylgst betur með borgurunum, af því að við treystum þeim ekki. Við treystum ekki einstaklingi sem á kjallaraíbúð og er að leigja hana. Nei, hann þarf að vera í einhverjum miðlægum gagnagrunni ríkisins og ef hann skráir sig ekki þar fyrir 1. janúar fær hann milljón króna sekt og þetta verður skráð sem tekjuskattur. Alltaf erum við að taka. Ég þykist vita að margir hv. þingmenn Viðreisnar þegja þunnu hljóði og hugsa sitt þegar svona reglugerðir og frumvörp koma frá samstarfsflokki þeirra, Flokki fólksins. Þeir hafa svo sannarlega ítrekað það og jafnvel séð sig knúna, eins og hv. þm. Jón Gnarr sem kom hér upp, til að segja: Við erum ekki flokkur boða og banna eins og samstarfsflokkarnir. Af hverju er hv. þingmaður að gera það? Af því að það er verið að taka endalaus skref hér í þessum þingsal þar sem vegið er að frelsi fólks, (Forseti hringir.) frelsi okkar til að taka ábyrgð á eigin lífi, það þurfi að skrá það í einhverja opinbera gagnagrunna (Forseti hringir.) svo hið alsjáandi auga ríkisins geti fylgst betur með okkur.